Sið"bótar"bullurnar buðu afhroð.

Nú mun ljóst vera að íslenskir kjósendur telja almennt að stjórnmálamenn eigi ekki að þurfa að svara fyrir gjörðir foreldra sinna.

Kjósendur telja líka að stjórnmálamenn séu saklausir af ásökunum um spillingu og lögbrot uns sekt þeirra er sönnuð, ekki ólíkt því sem gengur um annað fólk.

Þetta hefur mér alltaf fundist vera augljóst, en þessi kosningaúrslit skerpa vissulega á þessu.


mbl.is Ríkisstjórnin tapar 12 þingsætum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Falsarar eða óvitar í liði vinstriflokkanna.

Í gær og í morgun birtu margir einstaklingar og Stundin greiningu Indriða H Þorlákssonar sem hann kallar Skattapólitík 2012 til 2016.

Fjölmargir virðast hafa tekið andköf yfir þessu en þar er því haldið fram að skattbyrðinni hafi verið velt yfir á lágtekju- og millitekjufólk á þessum tíma.

Vitnað í talnagögn sem öllum eru opin á vef hagstofu íslands.

Gögnin sýna að lægri tekju hópar borga meira en hærri tekjuhópar vegna þess að tekjur lægri tekjuhópa hafa hækkað og öfugt. Eða, minna atvinnuleysi og hærri tekjur lægsta tekjuhópsins skilar sér augljósleg í auknum skatttekjum af þeim hóp. 

Allir sem leggja það á sig skoða gögnin og hafa svolítinn skilning á tölfræði sjá þetta nokkurvegin svona.

Indriði slær hinsvegar fram fullyrðingum á borð við:

"Skattalækkanir í efstu tekjubilunum hafa verið bornar uppi af skattahækkunum í neðri tekjubilunum"  og

"Heildargróði og tap er svo að sjá í eftirfarandi mynd sem sýnir að hátt í 12 milljarðar hafa með skattabreytingum verið færðir frá hinum tekjulægri hópum til hinna tekjuhærri.

Þess framsetning Indriða á gögnum er annað tveggja fölsun eða hrein fáviska af hans hálfu.


mbl.is Betri kjörsókn en í fyrra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flokkar opinberra starfsmanna og bótaþega með um 50% fylgi.

Opinberir starfsmenn eru þriðjungur vinnufæra manna á ísland. Þeir mæta helming ver í vinnu en hinir. Laun þeirra eru greidd með sköttum þeirra sem nenna að vinna í einkageiranum.

Öryrkjar eru nú 10% af fjöldanum eða nærri 15% af þeim sem annars væru á vinnumarkaði. þeir mæta ekki vinnu og eru háðir framfærslu af sköttum þeirra sem geta og nenna að vinna í einkageiranum.

Fast að helmingur þeirra sem kjósa á íslandi byggja afkomu sína á að skattleggja þá sem vinna í einkageiranum.

Það sér hver maður að það gengur ekki til lengdar að svo stór hluti kjósenda hafi svo mikla hagsmuni í að kjósa aukin útgjöld yfir hina.

 

 


mbl.is X-S er hástökkvari vikunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Raunvirði allra eigna lífeysjóðanna er þá um 1400 milljarðar.

Hámarks raunvirð heildareigna íslensku lífeyrissjóðanna má finn á hverjum tíma með eftirfarandi formúlu. 

Erlendar eignir lífeirsjóða + ( árleg landsframleiðsla * 0,2)

900 +( 2.300*0,2)  =  1.360.000.000.000 kr  eða eittþúsund og fjögurhundruð milljarðar isk

Sparnaður í hagkerfi er ekki innleysanlegur nema sem nemur 4% landsframleiðslu á ári án þess að hafa veruleg  áhrif á hagkerfið og virði eigna í því. Formúlan reiknar því með að nothæfar innlendar eignir lífeirsjóðanna séu það sem hægt er að leysa úr þeim á fimm árum. Ef við mundum miða við tíu ár fara heldar eignirnar í 1800 milljarða. 

Í bókum sjóðanna eru heildareignirnar hinsvegar taldar vera nálegt 4000 miljarðar sem er algerlega fráleit og hrein móðgun að halda slíku fram við þá sem minnsta skilning hafa á þessu.

 

  


mbl.is Erlendar eignir lífeyrissjóðanna nálgast 900 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svona vitlaus er Jón G ekki

Jón á samkvæmt þessu að hafa talað við Óttar um greiðslur sem hann fengi fyrir vinnu fyrir Samfylkinguna.

Og í hvaða samhengi á það að hafa gerst, spyr ég. Vildi Jón fá peninga fyrir að vera í stjórmálum  en samfylkingin bauð betur og þess vegna skráði hann sig í Samfylkinguna ?

Tjónið sem hann er að valda bæði Bjartri framtíð og Samfylkingu með þessari innkomu er gríðalegt.

Jón Gnarr er enfaldlega ekki svona vitlaus. Hér býr eitthvað annað að baki.  


mbl.is Jón Gnarr hjólar í Bjarta framtíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlöður eru fyrir hey.

Svona lítur það út. Heyrúllur eru gjarnan settar í plast svo ekki þurfi að geyma þær í hlöðu. Hlöður dagsins í dag eru því gjarnan (hlutfallslega) minni en áður en þær eru engu að síður við öll hesthús íslandi.

Hay

Rafhlöður eru fyrir rafmagn. Hleðslustöð fyrir rafhlöður er þá rafhleðslustöð eða stytt hleðslustöð /(með vísan í bensínstöð). í framtíðinni munu þetta vera stór bílaplön um allt. Eins og staðan er núna þarf 2-4 slík fyrir eina bensínstöð. það verða þá hleðsluplön eins og myndin sýnir.

Hleðsluplan


mbl.is Opna hlöður í Vík og á Kirkjubæjarklaustri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Talsmaður breta og hollendinga

Í sjónvarpsviðtali vegna Icesave deilunnar  sagði Þórólfur með grátsaf í kverkunum að allt mundi hrynja á ísland ef ekki yrði gengið að kröfum breta og holendinga.

https://www.youtube.com/watch?v=KTcw4RsL4FU

Maður sem lætur svona þvælu út úr sér er kjáni.

Þórólfur Mattíasson er ríkistarfsmaður af guðs náð, það er það sem hann kann og getur. Slíkir menn eru ekki nothæfir í neitt annað en að fá launin sín og naga blýanta.

 


mbl.is Sjónarmið neytenda verða uppi á borðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband