Utanríkisráðherra

Guðlaugur Þór Þórðarson er í framlínu Sjálfstæðisflokksins.

Hann var fremstur í röðinni að óska Joe Biden sem nú situr ólöglega í hvítahúsinu, til hamingju með sigurinn, fjórum dögum eftir kosningarnar 3 nóvember 2020.

Samkvæmt þeim upplýsingum sem opinberar eru núna um kosningarnar er ljóst að utanríkisráðherra íslands mátti  vita og átti að vit þá að Donald Trump var og er réttkjörinn forseti bandaríkjanna. 

þegar þingkosningar á íslandi fara fram í september verður staðan því hugsanlega orðin þannig að almenningur veit að Guðlaugur Þór og líkleg öll ríkistjórnin er meðsek í glæp aldarinnar.

Stjórnarandstaðan getur kannski enn borið við fávisku en tíminn er að renna út á þau.

Liz Harris er ein þeirra sem vinnur nú markvist að því að taka niður glæpagengið sem ríkistjórn íslands virðist vera hluti af.

 


mbl.is Fylgi Sjálfstæðisflokksins 25,6%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að elta skottið á sér.

Nú þegar búið er að þróa bóluefni sem virka sæmilega á fyrstu útgáfu vírusins Sars-Cov-2 eru komin fram á sjónarsviðið á annan tug afbrigða sem bóluefnin virka ver og ekki á.  Samkvæmt viðtengdum greinum eru bóluefnin sem pesthræddir hlaupa nú eftir eins og hauslausar hænur nú þegar orðin ganglaus gangvart afbrigðunum sem nú dreifast hraðast. 

Pesthræddir ættu því að halda sig heima áfram, hvort sem þeir eru bólusettir eða ekki.

WebMD

Michael West

SarsCov2Variants

 


mbl.is Meira smitandi en önnur afbrigði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framlína frelsisbáráttunnar

var meira og minna alla 20. öldina í Bandaríkjum Norður Ameríku og sama virðist upp á teningnum á þeirri 21. Allur hinn vestræni heimur er að falla í hendur Xi og Glóbalista (kommúnista) og eina mótspyrnan sem orð er á gerandi virðist koma frá Bandaríkjunum.
 
Bill Baily og lögfræðingur hans Matt Deperno eru fremstir í bardaganum. 
 
11:40 9.5.21  Myndbandið sem var hér hefur verið flaggað og tekið niður vegna þess að YouTub telur að þú, lesandi góður, hafi ekki þroska til að meta trúverðugleika þess.
 
 

Verði þér að góðu herra Forseti

Landlæknir sendi mér SMS um daginn og bauð mér í bólusetningu sem ég afþakkaði. Ekki vegna þess að ég sé hræddur við nálar eða að bólefnið sé eitthvað eiturbras, heldur vegna þess að ég met það svo að fjölmargir aðrir sem lifað hafa í ótta undanfarið ár og raunveruleg trúa því að bólefnaglundrið bjargi þeim, hafa verulega þörf fyrir það.

 

 

 

 


mbl.is Forsetinn fékk bóluefni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband