Hirðfífl skálda fréttir fyrir hjörðina.

Allir fjölmiðlar á íslandi eru nú uppfullir af bulli sem virðist þjóna þeim eina tilgangi að plata fullfrískt fólk í bólusetningu við Sars-cov2 virusnum, sem því stafar klárlega minni hætta af umferðinni á þjóðvegunum.

Nú þegar búið er að bólusetja um helming landsmanna (ef eitthvað er að marka þær tölur) hafa nokkrir tugir þurft sjúkhúsvist og einhver dauðsföll virðast tengjast bólusetningunni líka,  ætti öllum upplýstum að vera ljóst það er hættulegra að fara í bólusetningu en út að keyra. 

Þó áhættan sé lítil í báðum tilfellum og kannski ekkert til að gera veður út af þá er sá munur á að frískt fólk þarf að fara út í umferðina til að lifa lífinu en það hefur enga beina þörf fyrir bólusetningu við Sars-cov2 aðra en að elta hjörðina.

En hver borgar hirðfíflinu.?

 


mbl.is Hjartað sló ekki í 78 mínútur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 19. júní 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband