26.10.2009 | 09:09
Guð blessi Ísland.
Græningjarnir skilja bara ekki að orkuskattur lendir ekki bara á fyrirhuguðum álverum heldur líka á fyrirhuguðum sprotafyrirtækjum sem þeir eru svo hlynntir. þeir skilja heldur ekki að óvissa í skatta stefnu nú þýðir bara að öll fyrirhuguð atvinnuuppbygging í landinu stöðvast, líka það sem þeir kalla sprota og græna atvinnusköpun. Þeir skilja heldur ekki að þegar horft er til framtíðar (óstofnuð fyrirtæki ef þau verða þá einhver) þá er orkuskattur sem ríkið leggur á í raun tilfærsla á arði orkuvera frá sveitarfélögum og þjónustuatvinuvegum til ríkisins.Og til að toppa heimskuna þá heyrist nú úr þeirra röðum að það sé í lagi að hækka skatta á orkuverð nú vegna þess að gengi ISK sé svo veikt ?
Ég á einfaldlega ekki til nógu sterk lýsingarorð yfir heimsku þessara manna og kvenna sem stjórna á íslandi í dag.
Með þessa vitleysinga í brúnni fær frasinn "Guð blessi ísland" alveg nýjar víddir.
Í bið vegna orkuskatts | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Tók þetta án leyfis frá Cillu Ragnarsdóttur alveg ljómandi samantekt
Cilla Ragnarsdóttir: Samspilling hvað?
Benedikt Stefánsson var í Greiningardeild Landsbankans og er núna aðstoðarmaður Gylfa Magnússonar Efnahags- og Viðskiptaráðherra.
Björn Rúnar er skrifstofustjóri í Viðskiptaráðuneytinu. Hann var forstöðumaður í Greiningardeild Landsbankans
Edda Rós er núna fulltrúi Íslands í AGS í gegnum Samfylkinguna. Hún var forstöðumaður Greiningardeildar Landsbankans
Arnar Guðmundsson var í Greiningardeild Landsbankans. Hann er núna aðstoðarmaður Katrínar Júlíusdóttur Iðnaðarráðherra.
Með svo marga bankamenn í farteskinu, og einnig hafandi í huga að fyrir kosningar kom í ljós að Samfó var sá flokkur sem hafði fengið næstmest í gjafafé frá bönkunum og eigendum þeirra; er ekki þá einfaldlega ljóst hverra hagsmuna stjórnendur Samfó, eru að leitast til með að vera?
Áhugavert einnig, að allir þessir aðstoðarmenn, eru fyrrum starfsmenn Björgólfsfeðga.
Gæti þetta hafa eitthvað með málið að gera?:
Meðfylgjandi er yfirlit styrkja til Samfylkingarinnar frá lögaðilum árið 2006 sem voru hærri en 500 þúsund
* Actavis hf. 3.000.000
* Baugur Group hf. 3.000.000
* Eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga 1.000.000
* Eimskipafélag Íslands 1.000.000
* Exista ehf. 3.000.000
* Eykt ehf. 1.000.000
* FL-Group hf. 3.000.000
* Glitnir 3.500.000
* Kaupþing 5.000.000
* Ker hf. 3.000.000
* Landsbanki Íslands 4.000.000
* Milestone 1.500.000
* Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis 1.000.000
* Straumur Burðarás fjárfestingabanki 1.500.000
* Teymi ehf. 1.500.000
* Samtals yfir 500.000 36.000.000
BYLTINGU STRAX
Lúðvík Lúðvíksson, 26.10.2009 kl. 10:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.