14.7.2020 | 10:51
Kayleigh McEnany ber af eins og gull af eir.
á þessum blaðmannfundinum hvítahússins, eldklár og gullfalleg. Hún er búin að rúlla upp þessum blaðamannafundum núna í 2 mánuði. En íslenskir fjölmiðlar sniðganga það og hættu að birta fréttir af fundunum eftri að hún tók við.
![]() |
Fauci orðinn skotspónn Hvíta hússins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.6.2020 | 14:29
Skamast sín fyrir uppruna sinn og kennir hinum um.
Hér er á ferðinni klassísk dæmi um sjálfsfordóma. Svipaða þeim sem hrjá marga minnihlutahópa í Bandaríkjunum.
Alexandru gerir einfaldlega ráð fyrir því að allir telji hann þjófóttan því hann er Rúmeni. Þess vegna hafi þurft að taka það sérstaklega fram þegar lýst var eftir honum að hann væri hin vænsti maður og ekki þjófóttur þó hann hlýði ekki fyrirmælum um sóttkví. Fréttamaðurinn sem skrifar fréttina virðist líka hafa verið samála honum og viss um að Alexadru væri þjófur þangað til hann talaði við hann.
Manninum er vissulega vorkunn, en hvernig kemst svona þvæla í fréttir ?
![]() |
Við gerðum aldrei mistök |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.6.2020 | 11:44
Vísindi með PC ívafi
Í þessu svari er sagt að erfðir séu þáttur í því hve alvarlega fólk veikist af Sars.Cov2 smiti og vitnað í tvær rannsóknir sem báðar sýna mjög sterk tengsl. Einstaklingar í A blóðflokki eru til að mynda tvöfalt líklegri til að látast úr pestinni en þeir sem eru í O eða B og í tvíburaransókninni kemur fram skýr fylgni erfða við einkenni vægari smita.
En svo segir prófessor Arnar Pálsson í sínu svari að líklegt sé að fátækt og aðgengi að heilbrigðisþjónustu skýri þetta að mestu.
Gott og vel,
En þýðir það þá ekki bara að fátækt og aðgengi að heilbrigðisþjónustu er líka arfgengt ?
![]() |
Veirusýking er forsenda veirusjúkdóma |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 19.6.2020 kl. 09:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.6.2020 | 10:32
Sturluð samfélög og bókabrennur
Eingöngu sturlað samfélag á síðustu metrum hagsældar og menningar lætur bókabrennur viðgangast.
Erum við virkilega komin þangað ?
![]() |
Á hverfanda hveli fjarlægð úr streymisveitu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.6.2020 | 20:39
Þetta hlýltur að vera falsfrétt.
Samkvæmt öllum fréttamiðlum þessa daga fá blökkumenn ekki nein tækifæri í USA,
En ef rétt reynist mun einhver hvítur foréttindapési sennilega stela bílum eða drepa Antonio áður en langt um líður.
![]() |
Fær bíl að launum eftir að hafa hreinsað eftir mótmælin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.6.2020 | 17:20
Þessi er hugrökk
![]() |
Útför George Floyds |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.5.2020 | 21:15
Ótrúlega einfaldir sóttvarna sérfræðingar.
Þessi rannsókn bendir einfaldlega til þess að minna en helmingur Svía geti smitast og dreift veirunni Sars.Cov.2. og mynda því aldrei mótefni. Ástæðan er óljós, gæti verið genisk eða bara sænskt mataræði. En af hverju allir þessir "sérfræðingar" fatta þetta ekki er mér algerlega hulin ráðgáta.
![]() |
Einungis 7,3% Stokkhólms myndað mótefni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 22.5.2020 kl. 09:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.4.2020 | 11:32
Pestar tölfræði.
Í dag 13. apríl eru 30 fylki Í Bandaríkjum Norður Ameríku með lægri dánartíðni en á íslandi. í þeim fylkjum búa 3/4 hlutar íbúa BNA.
Væri Ísland fylki í BNA mundi árangur í sóttvörnum fylkisins eflaust teljast ámælisverður af mörgum beturvitunum sértakleg ef tekið er tillit til þess að ísland er eyja í miðju Atlantshafi.
Sóttvarnir ganga hinsvegar mjög vel á íslandi, eftir að allar aðrar þjóðir lokuðu landmærum sínum sem sést vel á meðfylgjandi mynd. Ljóst má vera að hefðu íslendingar bara hlýt Víði væri pestin verulega útbreiddari hér.
Þetta breytir samt ekki því að á íslandi er komið upp költ sem heldur að íslenskir ríkisstarfsmenn sem hafa þurft að mæta í vinnuna undanfarnar vikur séu í þann mund að bjarga heiminum.
Ég tek fram að ég hef enga skoðun á því hvort Sænska eða S-Kóreu leiðin í sóttvörnum sé betri. Ég sé hinsvegar að báðar leiðirnar hafa sína kosti og kannski stærri galla.
Í grafinu hér að neðan eru plottuð dagleg smit á íslandi miðað við að allaf hefðu verið greind 1000 sýni á dag. 500 af LSH og 500 af ÍE. Þannig fæst einhver mynd af hraða smita á landsvísu á hverjum tíma. Greinilegt er að leitnin er mjög skýrt niður frá 20 mars. Toppurinn þar stafar sennilega af því að fram að þeim tíma eru að greinast einstaklingar sem smituðust fyrir hertar aðgerðir sóttvörnum eins og lokun landamæra og eitthvað var líka verið að spara sýnapinna á íslandi um það leiti.
![]() |
Yfir 22 þúsund látin í Bandaríkjunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.4.2020 | 13:04
Mat siðblindra drullusokka ?
"Að mati Creditinfo er vanskilaskrá nauðsynlegt tæki til áhættustýringar fyrir íslenska lánveitendur en ekki síður til þess að vernda neytendur."
Stjórnarskrá lýðveldisins Ísland 71. gr.
Allir skulu njóta friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu.
Ekki má gera líkamsrannsókn eða leit á manni, leit í húsakynnum hans eða munum, nema samkvæmt dómsúrskurði eða sérstakri lagaheimild. Það sama á við um rannsókn á skjölum og póstsendingum, símtölum og öðrum fjarskiptum, svo og hvers konar sambærilega skerðingu á einkalífi manns.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. má með sérstakri lagaheimild takmarka á annan hátt friðhelgi einkalífs, heimilis eða fjölskyldu ef brýna nauðsyn ber til vegna réttinda annarra.
Creditinfo safnar upplýsingum um einstaklinga og fyrirtæki og selur þær til þriðja aðila. Það samræmist ekki siðferðisvitund heiðarlegs fólks og fer beint gegn stjórnarskrá lýðveldisins.
Mín skoðun er sú að þeir sem leyfa sér að vinna hjá þessu fyrirtæki séu siðblindir glæpamenn og samfélagslega hættulegir. Þetta fólk er klárlega með líf á samviskunni. Þeir sem versla við þessa drullusokka eru litlu skárri.
Það viðhorf sem viðgengst í fjármálheiminum á íslandi að þetta sé bara í lagi er ill skiljanlegt í ljósi þess að Íslensk Erfðagreining fær ekki einu sinn að safna lífsbjargandi heilsufarsupplýsingum vegna persónuverndarsjónarmiða ?
![]() |
Segja kröfu ASÍ og NS óskiljanlega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
5.4.2020 | 12:27
0,6% núna
Þýðir að núna eru 1200 manns "veikir" í höfuðborginni að viðbættum þeim sem eru greindir sem gerir um 2500 manns núna.
Þessi rannsókn háskólans Padua á Ítalíu sýnir að sýktum einstaklingum fækkar mjög hratt þegar gripið er til sóttvarna Þarna voru allir í 3000 mann bæjarfélagi greindir 6. mars og greindust þá 89 smit (3%) öll einkennalaus eða einkennalítil, sem öll voru set í einangrun. 14 dögum seinna voru allir greindir aftur og aðeins 6 voru enn með greinanlega sýkingu. 83 hafði þá "batnað" eða vor þeir kannski aldrei veikir ?
0,6% smit núna í Reykjavík þýðir samkvæmt þessu að nú þegar séu tugþúsunda íslendinga búnir að taka þessa sótt án þess að hafa hugmynd um það.
Ég áætlaði að um 5.000 íslendingar væru búnir að smitast 15. mars. Sennilega var það stórkostlegt vanmat.
Í grafinu hér að neðan eru plottuð dagleg smit á íslandi miðað við að allaf hefðu verið greind 1000 sýni á dag. 500 af LSH og 500 af ÍE. Þannig fæst einhver mynd af hraða smita á landsvísu á hverjum tíma. Greinilegt er að leitnin er mjög skýrt niður frá 20 mars. Toppurinn þar stafar sennilega af því að fram að þeim tíma eru að greinast einstaklingar sem smituðust fyrir hertar aðgerðir sóttvörnum og eitthvað var verið að spara sýnapinna um það leiti.
![]() |
Aðeins 0,6% í slembiúrtaki smituð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)