22.1.2018 | 11:02
Borgarlína er fyrir þá sem kunna ekki að reikna.
Ef húsasmiður þarf að eyða auka 30 mínútum á dag í strætó vegna vinnu þá er það samtals um 10 tímar á mánuð eða 120 tímar á ári. Útseld vinna húsasmiðs er ódýrust um 5000 kr án Vask sem þýðir að hann verður af 600.000kr tekjum ef hann notar strætó og þarf að greið um 100.000 kr í strætó. Ef hann hinsvegar notar lítinn sendibíl sem kostar nýr 2.000.000 getur hann veit betri meiri þjónustu (útseljanlegur sendibíll) og unnið lengur. Augljóslega hefur hann ekkert val. Hann verður að ver á bíl.
Ef lögfræðingur þarf að eyða auka 30 mínútum á dag í strætó vegna vinnu þá er það samtals um 10 tímar á mánuði eða 120 tímar á ári. Útseld vinna lögfræðinngs er ódýrust um 10.000 kr án Vask sem þýðir að hann verður af 1.200.000kr tekjum ef hann notar strætó. Augljóslega er því eini valkostur hans líka að nota bíl.
Borgarlína er í grunnin bara aðgerð sem skerðir þjónustu við alla nema þá sem hafa afgangs tíma til að eyða í strætó. Hverjir eru það ? Túristar.?
Til að kom á móts við þarfir vinnandi fólks þarf Reykjavík betri vegi og vegtengingar í allar áttir, göng eða brýr á sundin og fleiri bílastæði í borginni.
![]() |
Segir grein Frosta rökleysu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
18.1.2018 | 11:05
Ýkjur og lygar
Eru daglegt brauð í fréttum af störfum lögreglu á íslandi. Hér bregður hinsvegar svo við að með fylgir myndband sem sannar að eingin hætta var á ferð sem er óvenjulegt. Oftast eru um að ræða einhliða tilkynningar um að hættulegt athæfi borgaranna þar sem við, borgararnir, erum lítillækkaðir með tilhæfulausum ásökunum.
Fyrir mörgum árum um verslunarmannhelgi ákváðu tveir lögreglumenn að stöðva mig. Ég hafði ekið framhjá þeim þar sem þeir voru kyrrstæðir á malarvegi úti á landi. Ég var með tvö börn í bílstólum í bílnum. þegar þeir náðu mér nokkrum mínútum seinna með blikkandi ljósum og sírennu hélt ég að þeir væru í útkalli, það var einhver umferð á móti svo ég hægði mjög vel á mér úr kannski 80-90 niður í 70-80 og vék vel út í kannt þannig að þeir höfðu gott pláss til að fara framúr en þeir virtust vera mjög ragir og eftir smá stund ákvað ég að hægja enn meira á mér niður 20-30 og fara eins utarlega og hægt var. þá allt í einu skelltu þeir sér framfyrir og lokuðu á mig eins og gert er í bíó, en ökumaður lögreglubílsins var svo mikill klaufi að bíllinn endaði hálfur útaf nokkuð brattri vegöxl og festist þar. Lögreglumennirnir voru mjög æstir sérstaklega sá yngri og sökuðu mig um að reyna að stinga af og fleira en sögðu samt að ég fengi að halda áfram af því að ég var með börnin. Ég ákvað að svara þeim sem minnstu en bauð þeim hjálp við að losa bílinn sem þeir þáðu.
Daginn eftir var frétt í blaðinu um að einn hafi verið stöðvaður eftir ofsaakstur og eltingaeik við lögreglu. Ég var síðan kærður fyrir ofsaakstur og sinna ekki stöðvunarmerkjum lögreglu en eftir fund með lögfræðingi á lögreglustöðinni var málið látið niður falla enda um tilæfulausar ásakanir að ræða.
![]() |
Svínaði fyrir lögreglu á rauðu ljósi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.12.2017 | 16:24
Kunna reikning en enga stærð og eðlisfræðiðfræði
Yfirborð jarðarinnar er samtals 510.000.000 km2 þar ef er 340.000.000 km2 haf. Grænlandsjökull er 2.850.000 km3. (340.000.000/2.850.000 = 0,008) Ef allur ísinn bráðnar og endar sem sjór í hafinu jafngildir það um 8 metra dýpkun á hafinu, þetta er sára einfalt eða hvað?
Það að hafið dýpki er ekki það sama og að yfirborð þess hækki, Ef maður tekur 2.850.000.000.000.0000 tonn ofan af Grænlandi og setur þau í hafið þá er augljóst að Grænland hækkar, rís úr hafi og sjávaryfirborðið lækkar þá í það minnsta á Grænlandi, svipað og er að gerast við ströndina undir Vatnjökli. Hækkar þá yfirborðið einhverstaðar annarstaðar en á Grænlandi ? Til þess að Grænland getir risið þarf efni að koma undir það, það efni kemur úr sjáfarbotninum sem lækkar þá sem því nemur. Reyndin er sú að yfirborð sjávar mundi breytast bæði til hækkunar og lækkunar ef allur ís á Grænlandi mundi bráðna, og eyjar í úthöfum í sökkva í sjó á meðann eyjar risu úr hafi við Grænland.
Reikningur getur verið skemmtilegur en hann er ekki hægt að nota til gagns nema menn kunni líka stærðfræði.
![]() |
Grænland án ísbreiðunnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
9.12.2017 | 11:22
Hræsnari með samúð fyrir dýrum (eða frostpinnum)
Ljósmyndarinn sem tók þessa mynd kennir vondum mönnum um hvernig komið er fyrir hvítabirninum. (sem kallaður er ísbjörn í fréttinni sem er eftir því sem ég best veit íslenskir íspinnar frá körís) Af skrifum hans má skilja að illmenni í útlöndum brenni olíu sem valdi því að hlýni á jörðinni og því sveltur björninn.
Það sem hann segir ekki er að hann þurfti að brenna um það bil 1000 sinnum meiri olíu en meðaljarðarbúinn daginn sem hann fór ferðina til að mynda björninn. Hann segir ekki heldur frá því að Stærsta eyja Baffin eyjaklasans er 500.000 km2 eða fimmfalt stærri en ísland. Syðsti oddi hennar er 61° N sem er 200 km sunnar en syðsti oddi íslands nyrsti oddi Baffin eyju er um 73° N sem er 800 km norðar en nyrsti oddi íslands. Baffin Bay er flóinn á milli Grænlands og Baffin Eyju. Flóinn er fast að 2000 km langur. Hann tæmist og fyllis af ís á hverju ári og það hefur hann gert síðan mælingar á þessu hófust, mis mikið en hann tæmst alltaf nær alveg.
Hvernig hann finnur svo út að björnin sé svangur af völdum vondra mann í útlöndum er ekki gott að sjá.
![]() |
Hræðilegt dauðastríð ísbjarnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.12.2017 | 10:33
Íslensk Kjósönd er undarlegur en fyrirsjáalegur fugl.
íslenskar Kjósendur styðja vitanlega nýtt fólk til góðra verka. Allir sæmilega sómakærir menn gera það.
Síðast þegar svona vel áraði fyrir ríkisstjórn í könnunum var 2007, þá var breið stjórn frá hægri til vinstri líka nýkominn á koppinn og enn án nokkurra verka til að dæma hana af, það brá raunar skjótta af henni þegar á reyndi. Ríkistjórn Bjarna, Katrínar og Sigurðar er í sömu sporum nú, ekki eitt mál komið á dagskrá þingsins þegar 4/5 hlutar kjósanda sem svara könnunum lýsa yfir stuðningi við hana.
Fyrsta verk hverrar ríkistjórnar er að gera verkáætlun eða stjórnarsáttmála það er því ekki úr vegi að skoða þá.
Stjórnarsáttmáli 2017 Stjórnarsáttmáli 2007
Nýi stjórnarsáttmálin er 40 A4 blaðsíður en gamli er 6. það þarf þá um það 7 sinnum fleiri tré til að að prenta þann nýja á pappír.
Sáttmálarnir eru afhentir á PDF formati, sá nýi 5,8 Mb en sá eldri 0,2 Mb. Það þarf þá um að bil 30 sinnum meiri orku til að vista og vinna með nýja sáttmálann en þann gamla.
Við samanburð á efnismagni kemur í ljós að það eru 2400 orð í þeim gamla á móti 5800 orðum í nýja sáttmálanum eða 400 orð á blaðsíðu á móti 145 orðum á blaðsíðu.
Ég er ekki búinn að lesa þennan nýja stjórnarsáttmála nema lauslega en hafandi lesið í gegn um mörg svona skjöl þá er stórt innhaldslítið skjal á barnalegu teiknimyndasöguformati oftast ávísun á rýrt innihald. Vonandi er þetta ekki það sem koma skal.
![]() |
Mikill stuðningur við ríkisstjórnina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.11.2017 | 16:05
Vinstrisinnaðar kellingar meira dónalega viðreyndar en hinar ?
Með því að telja kellingarnar á listanum og flokkar þær lauslega niður eftir vinstri, hægri kemur í ljós nokkur vinstrislagsíða sem gaman væri að fá skýringu á.
Ég hef þá kenningu að vinstrimenn séu almennt meiri perrar en hinir. það þarf samt ekki að vera rétt, kannski er vinstrisinnað fólk bara fallegra og því meira dónalega viðreynt.
Nú eru kellingarnar á listanum að nálgast 1000 og þá hljóta hinar, sem ekki komast á listann og enginn hefur enn reynt dónalega við, að spyrja sig hvort þær séu ljótar og óaðlaðandi ?
Þá kann líka að vera að ljótar kellingar, skrái sig ranglega á listann til að tilheyra ekki hópnum óviðreyndar-ljótar-kellingar.
![]() |
Vilja vita hverjir dónakallarnir eru |
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana. |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
21.11.2017 | 15:04
Hvenær á að rýma.
Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum er ljóst að undir íshellunni á Öræfajökli er nú að bráðna ís í miklum magni. Gera má ráð fyrir að nú sé að um 10 milljón rúmmetrar af vatni innan öskjunnar sem ekki voru þar fyrir nokkrum vikum. Þetta vatn gæti valdið ansi stóru hlaupi á næstu mínútum, dögum eða vikum. Það geta í reynd ekki orðið neinar þær breytingar á þessu sem auka líkur á snöggu hlaupi, vatnið er komið á staðinn, fer vaxandi og við að bíða eftir hlaupinu.
Ég hefði haldið að ef það er einhvertímann ástæða til að rýma eða loka þá er það núna ?
Tek fram að ég mund aldrei rýma eða loka þessu svæði.
![]() |
Reiðubúnir að rýma þurfi þess |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.11.2017 | 10:00
Samningamaður andskotans ?
Stórkallalegar fyrirfram kröfur í fjölmiðlum eru ekki líklegar til að skila samningum og stórskaða það samningaferli sem framundan gæti verið.
Katrín er ekki svo vitlaus að vita þetta ekki.
Ég held því að hún sé í raun ekki að fara í stjórn með D. Baklandið í flokknum leyfir það einfaldlega ekki og þau mundu setja flokkinn á anna endann ef af þessu yrði. VG verður sennilega ekki stjórntækur flokkur fyrr en gömlu kommarnir eru allir dauðir.
Breið stjórn er sennilega meiri séns með Samfylkingu úr þessu þó ekki sé það líklegur kostur.
"Siðbótin" sem fólst í því að ljúga sakir upp á saklaust fólk og herkja það úr starfi ítrekað til að koma vinstrisinnuðum stjórnvöldum að er einfaldlega ekki að ganga í kjósendur. Þeir höfnuð þessari aðferðafræði í kosningum 2016 og 2017. Stjórnin til hægri, DBMF er það rökrétta í kortunum.
![]() |
Þreifingar við Sjálfstæðisflokk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.11.2017 | 12:27
Horfnir draumar.
Það sem stendur einna helst í vegi fyrir myndun ríkisstjórnar á íslandi í dag er í reynd leifar af kommúnisma og hatur ákveðinna einstaklinga á Sjálfstæðisflokknum.
Samfylkingin og Vinstri grænir eru stjórnmálaflokkar sem báðir byggja sinn grunn á sameiginlegri undirstöðu kommúnisma síðustu aldar sem Hannes Hólmsteinn gerir svo góð skil í þessari grein.
Frá miðri síðustu öld var pólitík vinstri-jafnaðarmanna á Íslandi lituð af því að kommúnistar náðu að sameinast þeim í Sósíalistaflokknum á fölskum forsendum og þar með hófst samfeld þrautaganga sem enn sér ekki fyrir endann á. Staðreyndin er sú að innan veggja VG og Samfylkingar eru enn menn og konur sem eyddu öllum sínum uppvaxtar og þroskaárum í trú á betra líf með Stalín í broddi fylkingar.
Frá hruni Sovétríkjanna hefur þetta fólk í reynd verið rekið áfram af hatri á öllum þeim sem eyðilögðu fyrir þeim drauminn.
![]() |
Allir eru að tala við alla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.11.2017 | 11:28
Sigurðir Ingi og U-beygja til vinstri ?
Stjórnin sem er í farvatninu í boði Sigurðar Inga er svo langt til vinstri sem kostur er að komast með þessi kosningaúrslit. Breið stjórn yfir miðju er alls ekki í þessum spilum eins og Sigurður Ingi hefur talað fyrir.
Ég held því að vinstrimenn misráði stöðuna illa í þessum viðræðum. Sigurður er í þessu til að sína lit og þóknast forsetanum í þessari umferð. Hann mun láta reyna á B D V þar sem hann sjálfur er forsætisráðherra áður en þetta kemur til greina af hans hálfu einfaldlega vegna þess að hann getur það.
![]() |
Funda heima hjá Sigurði Inga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)