Færsluflokkur: Bloggar
21.11.2017 | 15:04
Hvenær á að rýma.
Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum er ljóst að undir íshellunni á Öræfajökli er nú að bráðna ís í miklum magni. Gera má ráð fyrir að nú sé að um 10 milljón rúmmetrar af vatni innan öskjunnar sem ekki voru þar fyrir nokkrum vikum. Þetta vatn gæti valdið ansi stóru hlaupi á næstu mínútum, dögum eða vikum. Það geta í reynd ekki orðið neinar þær breytingar á þessu sem auka líkur á snöggu hlaupi, vatnið er komið á staðinn, fer vaxandi og við að bíða eftir hlaupinu.
Ég hefði haldið að ef það er einhvertímann ástæða til að rýma eða loka þá er það núna ?
Tek fram að ég mund aldrei rýma eða loka þessu svæði.
![]() |
Reiðubúnir að rýma þurfi þess |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.11.2017 | 10:00
Samningamaður andskotans ?
Stórkallalegar fyrirfram kröfur í fjölmiðlum eru ekki líklegar til að skila samningum og stórskaða það samningaferli sem framundan gæti verið.
Katrín er ekki svo vitlaus að vita þetta ekki.
Ég held því að hún sé í raun ekki að fara í stjórn með D. Baklandið í flokknum leyfir það einfaldlega ekki og þau mundu setja flokkinn á anna endann ef af þessu yrði. VG verður sennilega ekki stjórntækur flokkur fyrr en gömlu kommarnir eru allir dauðir.
Breið stjórn er sennilega meiri séns með Samfylkingu úr þessu þó ekki sé það líklegur kostur.
"Siðbótin" sem fólst í því að ljúga sakir upp á saklaust fólk og herkja það úr starfi ítrekað til að koma vinstrisinnuðum stjórnvöldum að er einfaldlega ekki að ganga í kjósendur. Þeir höfnuð þessari aðferðafræði í kosningum 2016 og 2017. Stjórnin til hægri, DBMF er það rökrétta í kortunum.
![]() |
Þreifingar við Sjálfstæðisflokk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.11.2017 | 12:27
Horfnir draumar.
Það sem stendur einna helst í vegi fyrir myndun ríkisstjórnar á íslandi í dag er í reynd leifar af kommúnisma og hatur ákveðinna einstaklinga á Sjálfstæðisflokknum.
Samfylkingin og Vinstri grænir eru stjórnmálaflokkar sem báðir byggja sinn grunn á sameiginlegri undirstöðu kommúnisma síðustu aldar sem Hannes Hólmsteinn gerir svo góð skil í þessari grein.
Frá miðri síðustu öld var pólitík vinstri-jafnaðarmanna á Íslandi lituð af því að kommúnistar náðu að sameinast þeim í Sósíalistaflokknum á fölskum forsendum og þar með hófst samfeld þrautaganga sem enn sér ekki fyrir endann á. Staðreyndin er sú að innan veggja VG og Samfylkingar eru enn menn og konur sem eyddu öllum sínum uppvaxtar og þroskaárum í trú á betra líf með Stalín í broddi fylkingar.
Frá hruni Sovétríkjanna hefur þetta fólk í reynd verið rekið áfram af hatri á öllum þeim sem eyðilögðu fyrir þeim drauminn.
![]() |
Allir eru að tala við alla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.11.2017 | 11:28
Sigurðir Ingi og U-beygja til vinstri ?
Stjórnin sem er í farvatninu í boði Sigurðar Inga er svo langt til vinstri sem kostur er að komast með þessi kosningaúrslit. Breið stjórn yfir miðju er alls ekki í þessum spilum eins og Sigurður Ingi hefur talað fyrir.
Ég held því að vinstrimenn misráði stöðuna illa í þessum viðræðum. Sigurður er í þessu til að sína lit og þóknast forsetanum í þessari umferð. Hann mun láta reyna á B D V þar sem hann sjálfur er forsætisráðherra áður en þetta kemur til greina af hans hálfu einfaldlega vegna þess að hann getur það.
![]() |
Funda heima hjá Sigurði Inga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.11.2017 | 10:00
Lilja hafnar vinstristjórn með málefnlegri festu.
Það má vera ljóst af þessum ummælum að S og VG eru að setja farm kröfu um einhverkonar ESB kosningar í viðræðum við B.
Sigurður Ingi reynir nú að losna undan áþjáni að þurfa að vinna í ríkistjórn með Sigmundi Davíð undir þeim formerkjum að vilja breiða Ríkistjórn sem er líka leið til að hann þurfi ekki að vinna með Sigmundi.
Lilja er í reynd orðinn foringinn í þessum 15 manna þingflokk sem kalla mætti BM og er með þessum ummælum að skikka formann B til að vinna með formanni M .
![]() |
Hafnar þjóðaratkvæði um ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.10.2017 | 10:22
Sið"bótar"bullurnar buðu afhroð.
Nú mun ljóst vera að íslenskir kjósendur telja almennt að stjórnmálamenn eigi ekki að þurfa að svara fyrir gjörðir foreldra sinna.
Kjósendur telja líka að stjórnmálamenn séu saklausir af ásökunum um spillingu og lögbrot uns sekt þeirra er sönnuð, ekki ólíkt því sem gengur um annað fólk.
Þetta hefur mér alltaf fundist vera augljóst, en þessi kosningaúrslit skerpa vissulega á þessu.
![]() |
Ríkisstjórnin tapar 12 þingsætum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.10.2017 | 13:18
Falsarar eða óvitar í liði vinstriflokkanna.
Í gær og í morgun birtu margir einstaklingar og Stundin greiningu Indriða H Þorlákssonar sem hann kallar Skattapólitík 2012 til 2016.
Fjölmargir virðast hafa tekið andköf yfir þessu en þar er því haldið fram að skattbyrðinni hafi verið velt yfir á lágtekju- og millitekjufólk á þessum tíma.
Vitnað í talnagögn sem öllum eru opin á vef hagstofu íslands.
Gögnin sýna að lægri tekju hópar borga meira en hærri tekjuhópar vegna þess að tekjur lægri tekjuhópa hafa hækkað og öfugt. Eða, minna atvinnuleysi og hærri tekjur lægsta tekjuhópsins skilar sér augljósleg í auknum skatttekjum af þeim hóp.
Allir sem leggja það á sig skoða gögnin og hafa svolítinn skilning á tölfræði sjá þetta nokkurvegin svona.
Indriði slær hinsvegar fram fullyrðingum á borð við:
"Skattalækkanir í efstu tekjubilunum hafa verið bornar uppi af skattahækkunum í neðri tekjubilunum" og
"Heildargróði og tap er svo að sjá í eftirfarandi mynd sem sýnir að hátt í 12 milljarðar hafa með skattabreytingum verið færðir frá hinum tekjulægri hópum til hinna tekjuhærri."
Þess framsetning Indriða á gögnum er annað tveggja fölsun eða hrein fáviska af hans hálfu.
![]() |
Betri kjörsókn en í fyrra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.10.2017 | 12:13
Flokkar opinberra starfsmanna og bótaþega með um 50% fylgi.
Opinberir starfsmenn eru þriðjungur vinnufæra manna á ísland. Þeir mæta helming ver í vinnu en hinir. Laun þeirra eru greidd með sköttum þeirra sem nenna að vinna í einkageiranum.
Öryrkjar eru nú 10% af fjöldanum eða nærri 15% af þeim sem annars væru á vinnumarkaði. þeir mæta ekki vinnu og eru háðir framfærslu af sköttum þeirra sem geta og nenna að vinna í einkageiranum.
Fast að helmingur þeirra sem kjósa á íslandi byggja afkomu sína á að skattleggja þá sem vinna í einkageiranum.
Það sér hver maður að það gengur ekki til lengdar að svo stór hluti kjósenda hafi svo mikla hagsmuni í að kjósa aukin útgjöld yfir hina.
![]() |
X-S er hástökkvari vikunnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.10.2017 | 12:03
Raunvirði allra eigna lífeysjóðanna er þá um 1400 milljarðar.
Hámarks raunvirð heildareigna íslensku lífeyrissjóðanna má finn á hverjum tíma með eftirfarandi formúlu.
Erlendar eignir lífeirsjóða + ( árleg landsframleiðsla * 0,2)
900 +( 2.300*0,2) = 1.360.000.000.000 kr eða eittþúsund og fjögurhundruð milljarðar isk
Sparnaður í hagkerfi er ekki innleysanlegur nema sem nemur 4% landsframleiðslu á ári án þess að hafa veruleg áhrif á hagkerfið og virði eigna í því. Formúlan reiknar því með að nothæfar innlendar eignir lífeirsjóðanna séu það sem hægt er að leysa úr þeim á fimm árum. Ef við mundum miða við tíu ár fara heldar eignirnar í 1800 milljarða.
Í bókum sjóðanna eru heildareignirnar hinsvegar taldar vera nálegt 4000 miljarðar sem er algerlega fráleit og hrein móðgun að halda slíku fram við þá sem minnsta skilning hafa á þessu.
![]() |
Erlendar eignir lífeyrissjóðanna nálgast 900 milljarða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.10.2017 | 15:24
Svona vitlaus er Jón G ekki
Jón á samkvæmt þessu að hafa talað við Óttar um greiðslur sem hann fengi fyrir vinnu fyrir Samfylkinguna.
Og í hvaða samhengi á það að hafa gerst, spyr ég. Vildi Jón fá peninga fyrir að vera í stjórmálum en samfylkingin bauð betur og þess vegna skráði hann sig í Samfylkinguna ?
Tjónið sem hann er að valda bæði Bjartri framtíð og Samfylkingu með þessari innkomu er gríðalegt.
Jón Gnarr er enfaldlega ekki svona vitlaus. Hér býr eitthvað annað að baki.
![]() |
Jón Gnarr hjólar í Bjarta framtíð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)