Það þarf sterk bein

og breitt bak til að stand upp eftir þá útreið sem þessi hefur fengið fyrir fylleríið á klaustrinu. Hann átti vissulega sumt skil, annað ekki og sumt er níð.

Í sjónvarpsþættinum Silfrið á sunndag sem Fanney Birna hafði umsjón með var rætt við Höllu Gunnarsdóttur ráðgjafa í jafnréttismálum, Henry Alexander aðjúnkt við HÍ, Ingibjörgu Kjartansdóttur frá Stundinni og Árna Helgason lögmann. Aðalumræðuefnið var Klaustursmálið. 

Öll fordæmdu þau klaustursmenn fyrir það mikla  " ofbeldi" og  "áreit" sem þeir eig að hafa framið með röflinu.

Þau voru líka öll viss um að sá sem, tók upp samtölin sé góðmenni og honum/henni hafi gengið gott eitt til með uppátækinu og vitanlega þarf slíkt góðmenni ekki að fara að lögum. 

Þau vor líka öll sammála um að það þyrfti að breyta lögum svo hægt væri að taka drullusokka sem láta nappa sig við að klæmast við vini sína á fylleríi úr umferð. 

Henry sagði að Klausturþingmennirnir hefðu greinilega skoðanir sem gera þá óhæfa þingmenn,  opinberir aðilar megi bara hafa skoðanir sem passa inn í einhvern siðaramma sem hann og vinir hans búa til.

Í stuttu máli vildi hópurinn setja á fót Rannsóknarétt með galdrabrennum og skoðanalöggu að hætti George Orwell.

 

 


mbl.is Bergþór stýrir fundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 29. janúar 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband