Donald Trump er Ólafur Ragnar Badaríkjamanna.

Slóttugur popúlisti sem segir það sem þarf til að fá atkvæði en ekki það sem hann ætlar sér að gera nái hann kjöri.

Trump er ekki nógu vitlaus til að halda að raunhæft sé að byggja múr á milli Mexíkó og BNA en það er fullt af ofstækisfullum mönnum í suðurfylkjunum sem stökkva á þann vagn. Hann veit að framkvæmdin er óraunhæf og hún mun aldrei komast á hans borð verði hann forseti. Hann hefur verið að sækja sitt fylgi lengst til hægri og í ofsatrúarliðið til að fá útnefninguna. Nú þegar það er í höfn þarf hann að sækja meira á miðjuna þar sem hann getur tekið fylgi af Clinton. Ég geri ráð fyrir að hann muni draga í land með margt fleira á næstu vikum.

Ólafur Ragnar þóttist lengi vera vinstrimaður, gerðist formaður í vinstriflokki og síðan Forseti með stuðning fólks lengst til vinstri,  í reynd án þess að hafa nokkru sinni sýnt slíka tilburði í verki. Trump er að gera svipaða hluti nema frá hægrikantinum.


mbl.is „Ég má skipta um skoðun“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eini munurinn á Donald Trump (Drumpf) og Adolf Hitler er að Hitler var með betri hárgreiðslu. laughing

Hins vegar er varla hægt að líkja Ólafi Ragnari við Donald, sem eins og þú segir er öfgahægrimaður og er að mínu áliti rasisti. Ólafur Ragnar stóð með þjóðinni gegn pólítísku fávitunum í Jóhönnustjórninni. Þannig má segja að Ólafur Ragnar sé algjör andstæða Donalds. Donald hefur sýnt það mörgum sinnum að hann er pólískur kretín, fáfræði hans um málefni Bandaríkjanna er verri en hjá G.W.Bush og er þá mikið sagt.

Pétur D. (IP-tala skráð) 9.5.2016 kl. 16:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband