Trump

Kemur alltaf meira og meira á óvart.

bréfið í íslenskri þýðingu

------------------------------------

The White house October 9. 2019

Hans hátign
Recep Tayyip Erdogan
Forsetir Tyrklands
Ankara

Kæri herra forseti:

Ger­um góðan samn­ing! Þú vilt ekki bera ábyrgð á slátrun mörg þúsund manns, og ég vil ekki bera ábyrgð á að eyðileggja tyrk­nesk­an efna­hag — og ég mun gera það, ég er búin að gefa þér sýnishorn af því, það sem fékk þig til að sleppa síra Brunson. 

 
Ég hef lagt mig fram við lausn þinna mála. Ekki bregðast heiminum. Þú getur gert góða hluti. Hershöfðinginn Mazlum Abdi er tilbúinn að semja við þig, og hann er fús til að gera tilslakanir sem ekki hafa áður verið á borðinu. Í trúnaði fylgir hér með afrit af bréfi hans til mín sem ég fékk nýlega.
Sagan mun líta vel á þig ef þú tekst á við þetta á réttlátan og mannúðlegan hátt.
Ég mun að eilífu líta á þig sem djöfullinn sjálfan ef þú velur leið illskunnar.
Ekki vera töffari, ekki vera bjáni!

Ég hringi í þig seinna.
     Einlæglega
     Donald Trump
-----------------------------
 
Þetta heitir á íslensku að lesa mönnum pistilinn.
Ég tel líklegt að viðskipþvinganir heima hjá Erdogan bíti meira á hann en stríð í Sýrlandi.
Einlæglega

mbl.is Erdogan henti bréfi Trump í ruslið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Will Franken er mjög fyndinn.


mbl.is „Feðraveldið að míga í brækurnar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrrum Ríkistarfsmaður

Fyrrum ríkistarfsmaður gengur í lið loftslagsafneitara, það er fréttnæmt. Magnús er á eftirlaunum og ekki hægt að reka hann, þess vegna getur hann þetta án þess að eiga á hættu að tapa tekjum og eyðileggja framvonir.

Þetta er samt stórt skref fyrir Magnús og hugrekki hans að taka slaginn við rétttrúnaðarklíkuna mikið.

Það er háalvarlegt mál að fjölmargir tækni og vísindamenn í vinnu hjá íslenska ríkinu sjá yfir og skilja IPCC leikritið, en þora ekki að tjá sig um málefnið af ótta við atvinnumissi.


mbl.is Engu líkara en dómsdagur sé í nánd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umhverfisverndarsinni

Sem vinnur i málinu og finnur lausnir. Öfugt við flesta hina sem heimta bara að einhverjir aðrir en þeir sjálfir leysi vandann. Framtíðin er björt.

Umhverfisverndarsinni


mbl.is Hreinsar plast úr sjónum með nýrri tækni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er eitthvað vit í því sem Kata og Kolli predika ?

Stutta svarið er nei, þetta er alveg glórulaust bull.

Í fyrsta lagi er öllum sæmileg hugsandi mönnum orðið ljóst að CO2 er ekki það vandamál sem af hefur verið látið og fyrirsjáanleg jákvæð áhrif þess í andrúmsloftíð klárlega miklu meiri en neikvæð.

En jafnvel þó við gefum okkur að CO2 upp á 0,04 til 0,1% valdi einhverskonar hamförum þá mun ekkert sem þau vilja gera breyta neinu þar um.

í dag koma um 60% CO2 losunar jarðefnaeldsneytis frá  Kína og Afríku og þar fer losunin ört vaxandi. Kína ætlar að auka losun til 2030. ekkert plan er víðast hvar í Afríku. Eina stóra ríkið sem hefur raunverulega minkað CO2 losun frá aldamótum er Trumpland. 

Tim Ball hefur skoðanir á þessu. Hann vann nýlega mál sem höfundur Hockey stick grafsins, Michael Mann höfðaði á hendur honum. Nú fjarar hratt undan óvitunum.


mbl.is Öll pólitík verði hugsuð út frá loftslagsmálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trump er snillingur

Hann þurfti að vita hvort þeir sem öllu ráða á Grænlandi nú um stundir (danskir kaupsýslumenn) hefðu eitthvað umboð,  svo vitanlega sendir hann bara kauptilboð.

Danir eru nýlenduherrar á Grænlandi. Kauptilboðið ætti að opna augu Grænlendinga fyrir því.


mbl.is Segðu Trump að halda sig fjarri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Laufþekja hefur aukist um 5% í heiminum frá aldamótum.

Laufþekja hefur aukist um 5% í heiminum frá aldamótum. Indland og Kína eru þau svæði heiminum sem laufþekja hefur aukist lang mest. Ástæðan er sögð vera þrautseigja innfæddra.

Fróðleg Skýrsla NASA  um málefnið.

Í niðurlagi skýslunar er þessi texti

"Overall, Nemani sees a positive message in the new findings" Once people realize there’s a problem, they tend to fix it,” he said. “In the 70s and 80s in India and China, the situation around vegetation loss wasn’t good; in the 90s, people realized it; and today things have improved. Humans are incredibly resilient. That’s what we see in the satellite data.”

Hér vantar að benda á hið augljósa, Indland og Kína gerðu þetta með því að tæknivæða landbúnað og stórauka bruna á jarðefnaeldsneyti og þar með útblæstri kolsýru CO2.

Skýrsla NASA


mbl.is Loftslagsbreytingar auka landeyðingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ert þú hættur að lemja konuna þína ?

Er spurning sem engin sem ekki lemur konuna sína getur svarað. Svarið er hinsvegar létt, já eða nei, fyrir alla þá sem stunda þá iðju. 

Svipað er með spurningu fréttablaðsins. Hún var svona:

Hversu sammála eða ósammála ertu því að loftslagsbreytingar af mannavöldum séu staðreynd?

:: Mjög sammála :: Frekar sammála ::Hvorki né :: Frekar ósammála ::Mjög ósammála.

Svarhlutfall var 51%

Þessu getur engin svarað sem veit að allar lífverur hafa áhrif á umhverfi sitt nema sverja um leið hollustu við kolefniskirkjuna og Al Gor.

Þannig er ég til að mynd mjög samála fullyrðingunni en ég er nokkuð viss um að það er öllu jafna meira jákvætt fyrir okkur og umhverfið en neikvætt. 

51% aðspurðar vor samt nógu grænir til að svara og Karínu Jakobs finnst það jákvætt.

Við heimskum spurningum fást bara heimsk svör.

 

 

 

 

 


mbl.is 87% segja loftslagsbreytingar af mannavöldum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einu sinni var þetta fyndið og krúttlegt.

Skömmu fyrir aldamót þegar fyrstu loftslags-ofvitarnir voru að koma fram með sífellt fáránlegir dómsdagskenningar um skaðsemi koltvísýrings þá gat maður hlegið af þeim og stundum var eitthvað krúttlegt við eldmóðinn og sannfæringuna sem fylgdi þeim.

Ég man samt eftir að hafa vorkennt þeim stundum vegna innilegrar fáfræði þeirra um frumefnið kolefni og þátt þess í tilvist lífsins á jörðinni.

Þá gerði maður líka ráð fyrir að þeir sæju flestir villu síns vegar á nokkrum árum eins og hafði gerst með flestar dómsdagspár 20 aldarinnar.

Ég man sérstakleg eftir kenningunni um hungursneið á vesturlöndum þegar olían átti að vera búin upp úr 1990. Og ísöldinni sem átti að vera að hefjast upp úr 1970 vegna skógarhöggs í Amason.

En nú eru bráðum liðin 30 ár og kjánarnir sem halda að þeir geti verið til gagns og stjórnað hitastigi á jörðinni með því stilla magn CO2 í andrúmslofti hafa aldrei verið fleiri. 

í viðtengdri frétt er forsætis og umhverfisráðherra íslands að plotta um hvernig þau ætla að stilla hitastigið að jörðinni. Þau eru fullorðið fólk sem hefur haft ártugi til skilja hlutverk og tilgang kolefnis í lífinu á jörðinni en þau tala enn eins og leikskólabörn um málefnið.

Það er löngu hætt að vera fyndið eða krúttlegt, nú er það bara sorglegt. 

 


mbl.is „Við erum í kapphlaupi við tímann“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flott framtak.

Flott framtak þessara dansara sem lýsir þroskaðri afstöðu til átakanna, Ísrael Palestína. Ég get ekki sagt það sama um íslenska leðurhommabandið sem hefur aukið á hatrið sem þeir þykjast fordæma.


mbl.is Veifuðu palestínska fánanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband