21.2.2019 | 11:14
Þegar öllu er snúið á haus.
Er eingin von til að vitræn lausn finnist.
Hamingja er afleiðing ekki orsök.
Þeir sem eru hamingjusamir eru það vegna þess þeir eru sáttir við sitt hlutskipti hvert sem það er. Það sem veitir flestum hamingju er að bera ábyrða á einhverju og standa undir henni. Konur vilja gjarnan bera ábyrgð á öðu fólki börnum, fjölskildu eða sjúklingum, jafnvel skepnum, að fá sér hund er oft lausnin fyrir daprar konur. Karlmenn eru frekar í því að vilja bera ábyrgð á hlutum, brúarverkfræðingur fær mikið út ú því að brú sem hann hannar sé smíðuð og standi, að bera ábyrða á að þakið leki ekki og að klósetið virki á heimilinu getur verið hluti að hamingju eiginmannsins. Gera upp og laga bíla eða flugvélar er líka algengt áhugamál sem veitir miljónum manna um allan heim hamingju.
Að þekkja sinn stað, hafa sitt hlutverk og vera sátt þar er grunnur að góðri heilsu. Þegar einstaklingurinn hefur náð þannig utanum líf sitt er hamingjan stundum laun erfiðisins.
Staðreynd másins er sú að starf á vinnumarkaði og þá sértaklega "karlægri störf" eru ekki líkleg til að veita konu hamingju.
![]() |
Hamingjusamir veikjast sjaldnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.2.2019 | 08:56
Eru hnífarnir vandamálið ?
Af lestri þessarar fréttar mætti ætla að hnífar séu vandmál í Oslo. of margir eigi þá og of auðvelt sé að eignast þá. Þegar óþjóðalýður meiðir eða drepur með flugvélum eða bílum dettur engum í huga að vandamálið sé of margar flugvélar eða bílar.
Nei hnífar eru ekki vandamál meðal siðaðra manna. Hin dapra staðreynd másins er að Oslo er hætt að geta talist til borga siðaðra manna.
![]() |
Borg hinna löngu hnífa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.2.2019 | 09:23
Útsmogið kosnigasvindl eða heimska ?
Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi og oddviti VG, sagði
"" Rannsóknir sýna að þátttöku fólks af erlendum uppruna, kvenna yfir áttrætt og ungs fólks í kosningum er ábótavant. Við viljum hvetja fólk til að nýta kosningarétt sinn,""
Hún sagði líka "" Það er ekki um kosningasvindl að ræða heldur held ég að það sé frekar um samskiptabrest að ræða, Það er fráleitt að vinstriflokkarnir hafi notað þetta til að auka fylgi sitt. VG fékk 2.700 atkvæði og þetta var greinilega ekki lausnin fyrir okkur eða Samfylkinguna, sem líka missti fylgi!""
Þannig er að glæpamenn hagnast mis mikið á glæpnum. Innbrot í hús sem í reynast lítil verðmæti er saknæmt innbrot engu að síður.
Dagur B og Líf trúa því að þau séu fyrsta val fólks sem er líklegt til að kjós til vinstri, þess vegna voru þau líka áköf að hvetja á kjörstað, undir formerkjum rannsókna, hópa sem einmitt eru líklegir til að kjósa til vinstri. Líklega hefði fylgi þessara flokka því verið enn minna í síðustu kosningum ef þau hefðu ekki svindlað.
Barnaskapur eða viljaverk, breytir engu, þau raunverulega eru sek um kosningasvindl í sveitarstjórnarkosningunum 2018
![]() |
Þarf álit utanaðkomandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.1.2019 | 08:55
Framtíðin er á fjarlægum plánetum.
Það er mikilvægt öllu mannkyni að voghverfingar þrói tækni til trjáræktar í óblíðu umhverfi. Ef þeim tekst að halda lífi í pálmatrjánum má hugsanlega nýta tæknina áfram til að búa til skóg á Mars.
Framsýni kommanna í Reykjavík er aðdáunarverð.
![]() |
Dönsk strá og pálmatré |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.1.2019 | 11:39
Það þarf sterk bein
og breitt bak til að stand upp eftir þá útreið sem þessi hefur fengið fyrir fylleríið á klaustrinu. Hann átti vissulega sumt skil, annað ekki og sumt er níð.
Í sjónvarpsþættinum Silfrið á sunndag sem Fanney Birna hafði umsjón með var rætt við Höllu Gunnarsdóttur ráðgjafa í jafnréttismálum, Henry Alexander aðjúnkt við HÍ, Ingibjörgu Kjartansdóttur frá Stundinni og Árna Helgason lögmann. Aðalumræðuefnið var Klaustursmálið.
Öll fordæmdu þau klaustursmenn fyrir það mikla " ofbeldi" og "áreit" sem þeir eig að hafa framið með röflinu.
Þau voru líka öll viss um að sá sem, tók upp samtölin sé góðmenni og honum/henni hafi gengið gott eitt til með uppátækinu og vitanlega þarf slíkt góðmenni ekki að fara að lögum.
Þau vor líka öll sammála um að það þyrfti að breyta lögum svo hægt væri að taka drullusokka sem láta nappa sig við að klæmast við vini sína á fylleríi úr umferð.
Henry sagði að Klausturþingmennirnir hefðu greinilega skoðanir sem gera þá óhæfa þingmenn, opinberir aðilar megi bara hafa skoðanir sem passa inn í einhvern siðaramma sem hann og vinir hans búa til.
Í stuttu máli vildi hópurinn setja á fót Rannsóknarétt með galdrabrennum og skoðanalöggu að hætti George Orwell.
![]() |
Bergþór stýrir fundi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 30.1.2019 kl. 09:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.1.2019 | 16:01
Ljóð Aldísra til Snæfríðar.
Ég er ekki kunnugur Jóni Baldvin nema af afspurn. Ég hef tvisvar hitt hann og skipt við hann á orðum, þá kom hann ekki illa fyrir. Ég bar alltaf nokkra virðingu fyrir honum sem er frekar óvenjulegt því hann er vinstri jafnaðaramaður. En þetta ljóð sem ég las í minningagrein fyrir 6 árum breytti því og miklu um hvernig ég skoða heiminn.
Heyrðu mig, hjartfólgna systir mín,
https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1452965/
![]() |
Misnotaði stöðu sína gegn Aldísi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.1.2019 | 15:18
Skaup vitlausa fólksins
Hvernig var hægt að klúðra þessu áramótaskaupi svona illa. Ég hló mig máttlausan í haust þegar kommaútvarpið réði fyrrum borgarstjóra til að skrifa handritið, en svo var nýi borgarstjórinn ekki einu sinn leikin af fyrrum borgastjóranum sem hefði vitanlega verið viðeigandi og fyndið. Eða hvað ?
Gleðilegt ár.
![]() |
Tíst um Áramótaskaupið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
24.12.2018 | 08:35
Nú talar Bjarnfreðarson
Veikur vinstri Borgarstjóri á vitanlega alla samúð fyrrverandi vinstri Borgarstjóra.
Það er augljóst að alkahólistar sem eru hægrimenn eru ekki veikir, bara vondir.
Og vitanlega þarf enginn að taka mark á konu sem er sek um að hafa skoðanir sem hallast til hægri. Það er ekki karlremba heldur manngæska og sósjalismi.
![]() |
Hvorki Dagur né Hrólfur eru vondir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.12.2018 | 15:09
Rowan Atkinson
Virðist hafa talað fyrir daufum eyrum landa sinna þegar hann hélt þessa stórgóðu ræðu um málfrelsi 2012. Á íslandi er staðan ljóslega enn verri.
![]() |
Þjóðin er að springa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.12.2018 | 08:07
Um mína daga.
Hef ég aldrei lesið annan eins þvætting.
Tilvitnun 1
Við sjáum oftar þurrka á sumum svæðum vegna hlýnunar loftslags og hlýnunin sjálf veldur breytingum á gróðri, segir Howard Epstein, prófessor í umhverfisvísindum
Var ekki vandamálið ísbrynja ?
Tilvitnun 2
Þá snýr vandinn einnig að skordýrafánunni. Hlýnandi loftslag þýðir einfaldlega fleiri skordýr á norðurheimskautinu, segir Epstein
Er ísbrynjan þá góð fyrir skordýrafánuna ?
Tilvitnun 3
Þá er aukin úrkoma í formi rigningar einnig vandamál.
Bíddu, Epsetein, voru ekki þurrkarnir vandamálið ?
Tilvitnun 4
Emily Osborne, sem fer fyrir rannsóknarverkefninu, segir að mikil óvissa ríki á heimskautasvæðinu. Hún segir að í gegnum árin hafi hlýnun orðið sífellt meiri og að það valdi aftur öfgafullu veðri annars staðar í heiminum.
Þetta er hreinn uppspuni. Hlýnun er miklu minn en flestir gerðu ráð fyrir og engum hefur tekist að sýna markvert fram á aukna öfga í veðri á heimsvísu.
Tilvitnun 5
Þá segir að hitastig hafi á síðustu árum mælst hærra en í nokkru ári þar á undan allt frá því að mælingar hófust árið 1900.
Heitasta ár frá upphafi mælinga var 2016. 2018 er talið verða 4. heitasta ár frá upphafi mælinga. Hér ber að gæta þess að mælingar er ekki til fyrir heimskáutasvæðin fyrir 1960. Allar hitamælainga fyrir 1960 eru ekki áreiðanlegar og kunna að innihalda villur sem ekki er hægt að leiðrétta fyrir svo vit sé í.
Hver er tilgangur svona bull "fréttaflutnings" ?
![]() |
Hreindýrum fækkað um helming |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)