Vegurinn um Gjábakka nógu góður fyrir mig og mína.

Og raunar mun betri en margir aðrir vegir sem ég er að nota á íslandi. Vegurinn er bara ekki nógu góður fyrir túrista iðnaðinn.

Túristaiðnaðurinn ber ábyrgð á því að vel flestir hálendisvegir á Íslandi eru að breytast í skurði sem mun kosta  milljarða að hækka upp og laga. 

Margföldun á umferðarþunga á þessum vegum, mest á þyngri bílum eins og rútum sem slíta vegunum mörg hundruð sinnum meira en venjulegur jeppi er vegna túristaiðnaðarins.

Það eru um það bil 5000km af vegum  á íslandi sem notaðir eru af túristaiðnaðinum sem þola ekki núverandi umferð.

Til að lagfæra það þarf burðalag og bundið slitlag sem kostar meira en 50 milljónir á hvern kílómetra.

í þetta þarf fjarmang sem svarar um 250 miljörðum á næstu árum. Hver á að borga það ?

Túrismi er einfaldlega ekki arðbær atvinnugrein þegar hún er orðin að þeirri stærðargráðu að hún gengur á innviði samfélagsins eins og staðan er nú íslandi.


mbl.is Of þungar rútur aka um Þingvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leikhús

Ég veit upp á hár hvað ég hef farið oft í leikhús um mína daga. Fimm sinnum, fyrsta sýningin var Kardemommubærinn þá var ég um 5 ára, ég held að mig hafi fundist gaman en man það samt ekki glöggt. Farm að þrítugu fór ég á næstu fjórar sýningar ég man að mér fannst þær allar hrútleiðinlegar, tvær voru sýndar í Borgarleikhúsinu og tvær í Þjóðleikhúsinu. Undanfarin 15 ár hef ég ekki farið í leikhús. En ég hef unnið nokkuð að tæknimálum í leikhúsi á þessum tíma, hannað véldrifna hluti og veit ráðgjöf við burðarþolhönnun í sviðsmyndum. Þannig hef ég ef til vill öðlast sýn á heim leikhússins sem fáir hafa.
Ég hef séð leikara á lágum launum frá ríkinu leggja á sig mikla vinnu við ömurlegar aðstæður í ónýtum húskofum og uppskera jafnvel bara skítkast fyrir og halda samt ótrauðir áfram í næsta verk. Ég hef horft á 30 manna hóp leikara beinlínis hlaupa fyrir björg í verki sem að mínum dómi átti ekki nokkurn möguleika á að verða áhugavert fyrir nein nema höfund þess(sem var svo raunin). Þeir mætu á æfingar, öskruðu, góluðu og veltu sér upp úr skít og engum fannst það gaman nema þeim sjálfum.
Niðurstaða: Bein opinber rekstur í leikhúsi eins og framkvæmdin er hérlendis étur það innanfrá með því að halda á floti hæfileikalausu fólki í greininni og eyðilegur þannig möguleika alvöru leikara og leikstjóra á að hafa sómasamlega afkomu í greininni.

32 amper, hvað er það mikið ?

Reykjavíkurborg  er að setja upp ofurhleðslustöðvar fyrir rafbíla heil 32 amper. Til samanburðar eru afköst venjulegrar bensínstöðvar ígildi um 20 þúsund ampera hleðslustöðvar í rafmagni eða um 600 sinnum meiri.

Ég tek bensín einu sinni í viku. Með því leiðlegra sem ég geri, bíða eftir að dælan klári, það tekur um 2 mínútur og ég keyri upp undir 1000 kílómetra á hleðslunni á bíl sem fæst nýr í dag fyrir 2 milljónir og er 1000 kg.

 

Algengur rafmagnsbíll ( Nissan Leaf)í svipaðri stærð er 1400 kg kostar um 2 sinnum meira í innkaupum (gjaldeyri)og hann slítur vegum meira en tvöfalt meira (vegslit er í 4 veldi með þunganum) Og það versta er að öryggi annarra vegfaraenda minkar í beinu hlutfalli með þyngd umferðarinnar.

Maður þarf að vera mjög einfaldur til að sjá ekki þetta er ekki að virka til hagsbóta fyrir nein nema bílasalann.

Í keppninni um vitlausustu hugmynd íslandsögunnar er ótímabær rafbílavæðing númer tvö á eftir banni við frambremsum í bifreiðum sem var rætt um miðja síðustu öld og verður seint velt úr toppsætinu.


mbl.is Setja upp 58 hleðslustöðvar í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kostuleg yfirlýsing sæskra.

Þetta hlýtur að vera sú alvitlausasta yfirlýsing sem frá ríkistjórn vestræns ríkis hefur komið.

"Við erum ekki í neinum vandræðum með fjölda innflytjenda"

Svo fylgir með nákvæm lýsing á vandamálinu og þeim aðgerðum sem sænsk stjórnvöld hafa farið í og eru á dagskrá til að taka á vandanum, aðgerðir sem felast meðal annars í lokun landmæra fyrir flóttamönnum.

 


mbl.is Glæpir í Svíþjóð blásnir upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sambandslaust samband

ESB er sambandslaust við sína kjósendur. Þeir sem ráða ferð eru almennt ekki kosnir af fólkinu í sambandinu heldur eru þeir ráðnir til starfa af fólki sem fyrir jafnvel áratugum fékk umboð frá kjósendum í heimalandinu. Pólitísk stefna ESB er því alltaf talsvert úr fasa við það sem er að gerast meðal fólksins sem byggir svæðið.

Þetta hefur meðal annars þær afleiðingar að óánjæga nær að magnast meðal stærri (og valdameiri) hópa sem svo stóreykur hættu á upplaus því stjórnsýslan nær ekki að endurspegla vilja meirihluta fólksins á hverjum tíma. 

Donald Trump hefur skýrt umboð kjósenda heima til að taka hart á innflytjendum sem líklegri eru til að vera öfga íslamistar. Hann gerir það og það bætir stöðugleikan heima.

ESB hefur hinsvegar ekki umboð frá (kjósendum) til að taka ekki sérstaklega á þessum hópum. Stefna Merkel og ESB í innflytjendamálum er ekki í samræmi við vilja fólksins sem byggir svæðið. Meira en helmingur íbúanna upplifir að stjórnsýslan troði á rétti þeirra og það er þess vegna sem stefnan gæti reynst hættuleg friði í álfunni.

 

 

 


mbl.is Vilja ferðabann í anda Trumps
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjúklegt ástand sem fjölmiðlar bera mikla ábyrð á.

"Donald Trumps Bandaríkjaforseta, sem bannar borgurum frá 7 múslimaríkj­um að koma til lands­ins."

Hér vantar inn í að bannið er tímabundið í 90 daga, Það  langur vegur þarna á milli, sú eða sá sem skrifar fréttina er að falsa frétt.

Donald Trump er ef til vill ekki til fyrirmyndar. Hann hefur samt ekki unnið sér fyrir því að vera kallaður öllum illum nöfnum og líkt við Adolf Hitler og Kim Jong-un eins og maður sér víða gert í dag.

Að líkja manni (eða konu) við geðsjúka fjöldamorðingja fyrir að hafa skoðanir sem samræmast ekki manns eigin er það lægsta sem hægt er að komast.

Þessi maður sem talað er um er Forseti Bandaríkja Norður Ameríku, Þjóðarinnar sem kom á friði í Evrópu eftir seinna stríð. Hann er ekki fjöldamorðingi og ekki fáviti, hann er maður sem nú tekst á við erfiðar áskoranir heima og heiman. Reynum að halda okkur við þær grundavallar staðreyndir.


mbl.is Tjá sig ekki um tilskipun Trumps
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Túristabændur eins og frekir krakkar í nammibúð

Ferðaþjónustuaðili sem fer með túrista í hættulega fjöru er alltaf að gera það á sína ábyrgð.

Þetta er vandamál þess sem selur ferðirnar og þeirra sem fara í þær. þeir þurfa að leysa vandamálið sitt án þess að heimta peninga af öðrum og eyðileggja náttúruna fyrir okkur sem viljum fá að njóta hennar án gaddavírs og varðhunda.

 

Þessi hugmyndafræði að gera náttúruna hættulausa með með girðingum og löggum er eins vitlaust og vitlaust getur orðið.

 

 

 


mbl.is „Þetta er ófremdarástand“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hagfræðingar eru vandamál á íslandi.

Þarna er komin sæmilega heiðarlegur enskur og hagfræðingur sem sér og lærir af reynslunni. Því miður er ekki það sama hægt að segja um Íslensku hagfræðingana sem komu fram í Heimildamyndinni Ránsfengur í gær á RÚV. Þar tala nokkrir íslenskir hagræðingar um að hrunið hafi verið íslenskum stjórnmálamönnum að kenna en ekki þeim sjálfum og glæpastarfsemi sem þeir sjálfir tóku þátt í, í íslenskum bönkum. 

Sama á við um flesta hagfræðingana í opinberi þjónustu á íslandi, Háskólinn og Seðlabankinn með talinn. Þeir eru enn að kenna stjórnmálamönnum um hrunið á íslandi.

íslensku bankarnir fölsuðu efnahagsreikningana sína, framleiddu peninga með ólöglegum hætti. Og það sitja menn í fangelsum fyrir þetta í dag. 

Veljast bara siðblindir vitleisingar í stéttina á íslandi ?


mbl.is Hafði rangt fyrir sér um áhrif Brexit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trump er ekki á sömu skoðun og nútíma sérfræðingar í umhverfisvermd.

Það þýðir samt ekki að hann sé ekki umhverfisverndarsinni eins og látið er í veðri vaka af andstæðingum hans.

Trump telur að öll mengun (önnur en CO2) í heiminum sé stærra vandamál en CO2 Og það sé í reynd ekki forsvaranlegt að auka við heildar mengun til þess eins að minka losun CO2. Nútíma umhverfisverndarsinnar einblín á CO2 og virðast tilbúnir að fórna öllu fyrir minnkun CO2 losunar. Flest allar aðgerðir sem farið hefur verið í til að minka CO2 losun fram til þessa hafa aukið á heildarmengun. Augljós dæmi eru aukning á notkun díselvéla smábílum og framleiðsla á rafhlöðum fyrir rafbíla.

Það verður að horfa heilstætt á dæmið. Umhverfivernd þar sem minnkun losunar á CO2 er eina markmiðið gerir það ekki og veldur í raun aukningu á heildarmengun í heiminum. 

Ég og Trump erum sammála í þessu. Sóun verðmætra auðlinda er ekki til þess fallin að bæta stöðuna til lengri tíma.

 


mbl.is Óttast framtíðina með Trump í Hvíta húsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessi biðst ekki afsökunnar.

Magnús Geir sakaði mig eitt sinn um vanhæfi í starfi og neitaði að greiða reikning fyrir vinnu á þeim forsendum.  Ég man vel eftir fundi sem ég sat með honum þar sem lögð var fyrir hann greinargerð út af málinu og hann sá að reikningurinn var réttmætur. Ærlegir menn hefðu skammast sín kannski beðist afsökunar eða orðið hófværir, en hann reiddist, sleit fundinum og borgaði reikninginn. Ég lít á þennan mann sem drullusokk síðan þá.

 

 


mbl.is Engin þörf á að biðjast afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband