21.11.2016 | 09:23
Ónýtir kennara geta hætt mín vegna.
Ég varð vitni að því nú í haust að kennarar niðurlægðu 10 ára börn með því að láta ólæs börn lesa upp texta fyrir framan 50 manns (bekkjarsystkini og foreldra.)
Fyrst var öllum krökkunum raðað upp við vegg í kennslustofu. Svo voru þau látin stíga fram eitt í einu og lesa textabrot. Þegar kom að ólæsu börnunum horfði ég á kennarana, það var greinilegt að þeim leið ekki illa eins og okkur fullorðnafólkinu sem horfðu upp á þetta ,heldur virtust þeir hafa gaman af þessari sýningu á ólæsum börnum. Það er ekki eins og þetta hafi verið verk eins kennara, þeir vor tveir þarna og fannst þetta bara sjálfsagt.
Ég er þeirrar skoðunar og hef verið lengi að skólinn og kennarastéttin á íslandi sé orðin óvinur númer eitt. Ekki vegna illsku einstaklinganna heldur vegna heimsku kerfisins sem virðist framleiða gersamlega ónothæfa kennara.
Þessi er með þetta
![]() |
Ganga út klukkan 13.30 á morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.11.2016 | 11:38
Tveir ágætir kostir í forsetakosningum BNA
Forsetakosningar í Bandaríkjum Norður Ameríku eru heimsviðburður og það skiptir okkur öll máli að ekki veljist fávís forseti í BNA.
Ég horfði á sjónvarpsþátt á íslenska kommasjónvarpinu ruv sem gerður var af íslendingi um ljóta kalla og (kerlingar) í Ameríku sem höfðu í hyggju að ræna völdum í heiminum. Annar ætlar að byggja vegg (sem reyndar verður ekki byggður nema með aðkomu bandaríkjaþings) og hinn ætlar að senda ríkisleyndarmál með heimilisþernum á milli húsa.
Það sem mörgum láist að skilja að er að þessir tveir einstaklingar eru báðir bráðgreindir og hafa á langri æfi unnið sér traust stóra hluta kjósenda hvor á sinn hátt. Það er ekki eins og þeir hafi bara verið hristir fram úr erminni af einhveri sjónvarpstöð mánuði fyrir kosningar.
Þetta eru frambjóðendurnir
Trump er snjall býsnesmaður sem lætur seint plata sig og Clinton er eldklár kona og mannvinur sem gerði eiginmann sinn að forseta BNA.
Ég mundi kjósa Clinton.
![]() |
Meðvindur með Clinton á lokadegi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.10.2016 | 18:27
Peningar 101 fyrir nýja þingmenn.
Í hagkerfi nútíma þjóðar er gjaldmiðillinn fyrst og fermst mælikvarði á þjóðarauðinn (verðmiði). Þeir sem búa til verðmæti í hagkerfinu fá greitt fyrir í peningum og eftir því sem meira er búið til af verðmætum eykst heildar virðið og þannig verður til það sem kallað er hagvöxtur. Í nútíma hagkerfum er ekkert á bak við gjaldmiðilinn annað yfirlýsing eigandans (Þjóðarinnar) um að hann sé einhvers virði, ólíkt því sem var á öndverðri síðustu öld þegar seðlar voru ávísanir gull eða aðra verðmæta málma. Nú hefur gulltrygging verið sleginn undan öllum gjaldmiðlum heimsins og þannig kollvarpað hegðun hagkerfanna. Eigendur gjaldmiðils geta tæknilega gefið hann út eftir því sem þurfa þykir. Þetta er það sem kallast fiat peningar.
Þetta þýðir að fræðilega getur Þjóðarauður vaxið jafnvel þó engin viðskipti séu við umheiminn (skiptir miklu máli að skilja þetta) þetta er gert með því að gefa út skuldaviðurkenningar eða peninga gegn traustum veðum í einhverju því sem þegnar hagkerfisins sýsla við. Dæmi: Bóndi sem ræktar land eykur framleiðni landsins og verðmæti og þar með er hægt að fá meir peninga lánaða gegn veði í landinu sem telst þá vera peningaprentun geng traustu veði (fiat peningar).
Vegna þess að hagkerfi án tryggingar gjaldmiðils eru tiltölulega ný og í mótun er kannski eðlilegt að eitt og annað misfarist eins og evrusamstarfið og heimskreppan 2008. Þegar á heildina er litið held ég samt að engin þjóð hafi efni á að vera ekki með.
Til að útskýra þessi nýju hagkerfi á einfaldan hátt má segja að ef útgefin gjaldmiðill í hagkerfinu er 100 einingar (bæði peningar og verðbréf hverskonar) þá er þjóðarauðurinn 100 . Ef fólkinu fjölgar um helming má gera ráð fyrir að hagkerfið stækki að minnstakosti sem því nemur, til að gjaldmiðillinn verði ekki tvöfalt verðmeiri (verðhjöðnun) þarf að gefa út 100 einingar í viðbót. Þetta er einfalt með fiat gjaldmiðli, einfaldlega gefa út skuldaviðurkenningar (lána gegn veðum) sem því nemur enda eru traust veð fólgin í manauðnum. Þetta er ekki hægt með gullfæti, þá verður að reka þjóðarskútuna með jákvæðum viðskiptahalla (flytja inn gull) við útlönd eða erlendri skuldasöfnun. Og hér skiptir máli að skilja að myntráð sem er á stefnuskrá stjóramálafloks Benedikts Jóhannessonar er eðli sínu það sama og gullfótur þar sem gjaldmiðillinn á alltaf að vera skiptanlegur yfir í eitthvað annað, gull eða annan gjaldmiðil. Ríkisjóður verður þá að stækka gullforðann til að bóndinn geti fengið lánið samanber dæmið um bóndann hér ofar.
Vandamálið (og kosturinn) við að gefa út eigin (fiat) gjaldmiðil er að það verður að vera einhver raunveruleg verðmætasköpun í hagkerfinu á bak við hana, en mönnum hættir til að gefa út of mikið (lán gegn lélgum veðum) sem veldur óhóflegri verðbólgu og stjórnmálamenn hafa oft mikið vald yfir því hvert þessir peningar fara sem veldur vantrausti. Engu að síður er ljóst að ef þetta vopn er slegið úr höndum þjóðar hlýtur hún að standa verulega höllum fæti með tilliti til stækkunar hagkerfisins og hagsældar til framtíðar.
Hverjir eru kostir eigin fiat gjaldmiðils (gjaldmiðill án gullfótar eða myntráðs):
Hægt er að búa til verðmæti með hagvexti innan hagkerfisins. (Dæmið um bóndann) Annað dæmi er lífeyrissjóðirnir þar sem hluti launaveltu í landinu er settur í sjóði, Þessir sjóðir geta stækkað án erlendrar skuldasöfnunar jafnvel þó vöruskipti við útlönd séu neikvæð. Að því gefnu að gjaldmiðillinn hafi eitthvað virði í milliríkjaviðskiptum er hægt að breyta þessum sjóðum að hluta í erlendan gjaldeyri eða bréf sem tryggir þá sjóðina fyrir gengisáhættu. Í raun hafa íslensku lífeyrissjóðirnir orðið til með þessum hætti sem að rökstyðja má með því að benda á að þjóðarauður að meðtöldum lífeyrisjóðum hefur vaxið mikið á síðustu öld þrátt fyrir viðvarandi neikvæðan viðskiptahalla.
Hægt er að rýra eða styrkja virði gjaldmiðilsins með því að stýra framboði af lánsfé í hagkerfinu, og þannig stuðla að því að atvinnuvegirnir séu samkeppnishæfir á alþjóða markaði. Almennt hefur verið talið að útgáfa gjaldmiðils sé hluti af sjálfstæði þjóðar, enda er það mikilvægt ef ekki mikilvægasta hagstjórnartækið.
Hverjir eru gallar eigin gjaldmiðils:
Gjaldmiðilsútgáfa gerir þá kröfu til handhafa þess valds að þeir skilji hvaða áhrif það hefur að auka eða takmarka framboð á fé í hagkerfinu og setur því gríðarlega mikla ábyrgð á hendur þeim sem með þetta vald fara. Mistök við skipan stjórnenda seðlabanka geta þannig kollvarpað efnahag þjóðar á nokkrum misserum. Erfitt er að ráða eða skipa í þessar stöður, til dæmis ef litið er til þess að öllu jöfnu virðist minnihluti alþingismanna á íslandi skilja til hlítar hlutverk og mikilvægi gjaldmiðilsútgáfu í afkomu þjóðarinnar. Enn fremur má benda á að óðaverðbólga og efnahagsleg hrun þjóða má mjög oft tengja beint við skipan óhæfra manna til að stýra gjaldmiðilsútgáfu. Á íslandi hefur verið tekið á þessu til dæmis með skipan þriggja seðlabankastjóra (fjölgað í fimm í tíð Jóhönnustjórnarinnar 2009-2013 en heita eitthvað annað en seðlabankastjórar)
Í aljóðaviðskiptum eru gerðar miklar kröfur um að gjaldmiðlar séu skiptanlegir. Því er gjaldmiðill hagkerfis sem að upplagi er minna en efnahagsreikningur fyrirtækja á hinum aljóðlega markaði í raun ekki nothæfur á þeim markaði án einhverra takmarkanna. Þetta er eitthvað sem við íslendingar hljótum að þurfa að taka á meðfram losun núverandi hafta.
![]() |
Benedikt fái umboðið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.10.2016 | 09:44
Þvo vinstristimpilinn af ?
Þau boðuðu alla Kommaflokkana til fundar um myndun ríkisstjórnar fyrir kosningar og útilokuðu svo samstarf við hægriflokka.
Að afneita sjálfum sér er ekki gott veganesti fyrir stjórnmálaflokk.
![]() |
Hefði átt að þvo vinstristimpilinn af |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.10.2016 | 09:21
Sporgöngumenn eru sjaldan nothæfir í annað en að vera sporgöngumenn
Þeir sem sjá Sigmund Davíð sem mann átaka og ósættis sjá ekki heiminn í kring um sig í samhengi. Átökin sem Sigmundur hefur staðið í hafa flest verið við fólk sem stefndi sjálfu sér og öðrum til glötunar með heimsku. Hann varð einfaldlega að taka slaginn við óvitana til að koma í veg fyrir stór slys í málefnum eins og Icsave, skuldaleiðréttingunni og afléttingu hafta, þetta varð að gera, menn ættu sjá það núna.
Vandi framsóknarflokksins er sá að hann er fullur af sporgöngumönnum sem sjá ekki stóru myndina og halda að þeir geti gengið á undan eins og Sigmundur hefur gert. Sigurður Ingi og fleiri í framsókn eru í raun staðnaðir sporgöngumenn sem nú ná aðeins að fylgja í kjölsoginu eftir Sigmund. Ég tel að ef Sigmundar hefði ekki notið við væri framsókn á svipuðum slóðum og Samfylkingin og Björt framtíð.
Það sem er samt merkilegast við þetta er að Bjarni Ben hefur ekkert gert að viti nema það sem hann apaði alveg upp eftir Sigmundi. Hann sá alltaf nógu snemma að Sigmundur og hans menn voru með sterkar lausnir og nýtti sér það. Hann er svo verðlaunaður af sínum flokk fyrir verk Sigmundar (þó það þurfi vissulega skynsemi til að sjá hvort lausnir eru góðar) en Sigmundur smánaður af heimskingjum í sínum flokk.
![]() |
Átök meginstef ferils Sigmundar Davíðs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.8.2016 | 11:28
Kosningar vegna misskilings
"Fréttamaðurinn" Jóhannes kristjárnson hafði undir höndum gögn (Panamaskjölin) sem benda til þess að Landsbankinn í Luxemburg (LL) eða starfsmenn þar hafi reynt að svíkja fé út úr eiginkonu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, Önnu Sigurlaugu Pálsdóttur sem þá átti von á nokkrum fjármunum vegna fyrirframgreidds arfs.
Flettan virðist hafa gengið út á að telja Önnu trú um að hún væri að kaupa 100% hlut í félaginu Vintris sem var stofnað af LL á Tortóla. En skjölin sem send voru til undirritunnar virðast hafa hljóðað upp á 4% hlut (voru aldrei undirrituð ).
Anna sá við þessu og gekk ekki í gildruna, hún lagði aurinn inn á banka í Sviss og taldi þá fram á íslandi undir eigin kennitölu en notaði nafnið Vintris sem er þá bara nafn á bankabók því hún virðist aldrei hafa eignast félagið á Vintris á Tortóla.
Guðbjörn Jónsson hefur tekið þetta vel saman hér og á hann þakkir skilið fyrir það.
"Fréttamaðurinn" Jóhannes Kristjánsson með fullþingi fréttastofu RÚV Sló þessu hinsvegar upp sem stórfrétt um það að Sigundur Davíð þáverandi forsætisráðherra ætti eignir á Tortóla sem er í fyrsta lagi alls ekki frétt hvort sem það er rétt eða ekki og öðru laga var það uppspuni frá rótumm samkvæmt öllum fyrlriggjandi gögnum.
Þessi ágæti "fréttamaður" drullaði sem sagt eins langt upp á bak kostur er í þessu. Lengra niður er ekki hægt að komast í "fréttamennsku".
Á svo virkileg að fara að halda kosningar í haust út á svona rugl ?
![]() |
Þjóðin hefur ekki beðið um neitt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.8.2016 | 13:12
Vinstrimenn á íslandi hafa fundið sinn nýja Davíð Oddsson
Vinstrimenn virðast hafa einhverja annarlega þörf til að hafa að minnstakosti einn einstakling til að hata út af lífinu á hverjum tíma. Allt sem sá segir eða gerir er vont og það svo gjarnan rökstutt með öfugri röksemdafærslu, bulli eða rangfærslum sem er svo haldið á floti með fjölmiðlafólki sem er sjálft blindað af þessum kenjum.. Davíð Oddsson var til nokkurra áratuga maðurinn sem vinstrimenn hötuðu en margt bendir nú til að Sigmundur Davíð hafi tekið við keflinu. Það verður að teljast markverður árangur. Til hamingju Sigmundur.
![]() |
Breyttist þegar Sigmundur Davíð fór |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.8.2016 | 11:48
Ópóltískur forseti verður pólitískur á fyrsta degi.
Þannig er að til þess að hægt verði að halda kosningar í haust þarf Sigurður Ingi Jónsson sitjandi forsætisráðherra að rjúfa þing. Forseti Íslands hefur engar slíkar heimildir. Forseti gæti samt gert ríkisstjórn Sigurðar Inga illa starfhæfa með því að skipa sér í lið með stjórnarandstöðunni í þinginu. Og það gerði hann í reynd með því að segja að orð Sigurðar um að halda kosningar í haust ættu að standa.
Sigurður Ingi og Bjarni Ben sögðu samt alltaf að það yrðu kosningar í haust ef einhver ótilgreind mál mundur klárast. Sem er náttúrlega ekki það sama og segja það verði kosningar punktur. Fávís lýðurinn, á eins og kunnugt er,oft erfitt með að skilja langar setningar og margir, þá helst fréttamenn á RÚV misstu alveg af seinni hlutanum.
Forseti fávísa lýðsins sem telur um 28% íslensku þjóðarinnar er sem sagt kominn í bullandi pólitík og starfar gegn sitjandi ríkistjórn á fyrsta degi í embætti með því að snúa út úr og þykjast ekki skilja mælt mál.
![]() |
Guðni settur í embætti forseta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
28.7.2016 | 10:32
Páfinn og Guðni forseti fávísa lýðsins eru komnir í hár saman.
Út af skilgreiningunni á því hvað er stríð. Páfi hefur eflaust frétt af skilgreiningu Guðna um að átök um auðlindir við ísland hafi ekki verið stríð.
Frans er ekki samála þessu.
"Þegar ég tala um stríð þá á ég við stríð vegna hagsmuna, peninga og auðlinda, en ekki trúarbragða. Öll trúarbrögð vilja að friður ríki, það eru hinir sem vilja stríð, sagði hann.
Eiginleg veit maður ekki hvort á að hlæja eða gráta yfir innilegri einfeldni þessara manna.
![]() |
Trúarbrögð ekki ástæðan fyrir stríði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.7.2016 | 16:40
RÚV í kreppu.
Ríkisútvarpinu hefur hrakað mikið síðastliðin sex eða átta ár. Fyrir því eru eflaust ýmsar ástæður en helstar tel ég vera að vinstristjórnin, sem tók við 2009 (sem var í reynd draumastjórn rúvaranna) floppaði illa í öllum stærstu málum þess tíma. Fyrst ber þar að nefna ESB síðan upptaka Evru, hrikaleg mistök í meðferð Icesave deilunnar og Forsetakosningar 2012 þegar frambjóðandi RÚV tapaði fyrir sitjandi forseta . Rúvararnir spiluðu í tapliðinu í öllum þessum málum sem kom fram í því þeir virkuðu bitrir og greinilega með öllu ófærir um að segja pólitískar fréttir á óhlutlægan hátt og án þess að einhver afkáralegur biturleiki skyni í gegn.
Til viðbótar við slaka fréttastofu kemur svo að stöðvar eins og N4, ÍNN og Hringbraut virðast ná að framleiða og sýna ágæt innlent efni á meðan rúvararnir eru aðallega í að endursýna gömul áramótaskaup og annað útrunnið rusl.
Í fljótu bragði finnst mér að Rúvararnir hafi ekkert gert vel nema þá helst Júróvison hin seinni ár sem mér finnst reyndar hrútleiðinlegt.
Nú er nýr forseti sem Rúvararnir buðu fram að fara að taka við, kannski batnar hljóði í þeim við það og nýir stjórnendur geta auðvitað gert sitt.
Ég held samt og vona að þetta apparat sé að að syngja sinn svanasöng í þeirr mynd sem verið hefur, breytinga er þörf.
![]() |
Sunna, Helga og Lára til RÚV |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)