Að gera lítið úr öðrum og upphefja sjálfan sig.

Þó Þessi formaður stjörnuskoðunarfélagsins hafi lengi haldið að dropinn við pheonix hafi verið vatn og að myndir frá gervihnöttum sem virtust sýna vatn, væri vatn, þá hefur ekki tekist að staðfesta að þetta hafi verið vatn.

Á blaðamannafundinum í gær var skilmerkileg greint frá því hvernig vísindamönnum hjá NASA tókst að sanna að rennandi vatn væri á yfirborði Mars í nútíma. Sem eru stórtíðindi í þessum bransa. 

Þetta bull í formanni stjörnuskoðunarfélagsins er á pari við að segja að fyrsta tunglgangan hafi ekki verið merkileg tímamót því einhver jólasveinn (á pari við hann sjálfan) hafi alltaf haldið að það væri hægt.


mbl.is Of mikið gert úr uppgötvuninni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjir eru flóttamenn ?

Flóttamenn eru þeir sem fara halloka heima hjá sér á hverjum tíma og hafa tök á að flýja. Á árunum fyrir 1945 voru flóttamenn frá Evrópu gjarnan efnaðir gyðingar en seinna voru það helst hærra settir nasistar sem auðgast höfðu í stríðinu og áttu þess helst kost að flýja, þeir enduðu gjarnan í suður Ameríku.

Í allri umfjöllun fjölmiðla á Íslandi um flóttamenn frá Sýrlandi er dregin upp mynd sem á sér enga stoð í raunveruleikanum. Flóttamenn eru ekki bara saklaus fórnarlömb heldur líka gerendur í stríði á flótta undan fortíð sinni.

Þetta þýðir ekki að ekki eigi taka á móti flóttafólki en menn verða samt að skilja að flóttamenn eru ekki bara sakleysingjar á flótta undan þurrkum.


mbl.is „Þetta er ekki nóg“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ógn úr vestri.

Vesturevrópa réðist á Rússa fyrir 80 árum síðan undir merkjum þjóðverja. Þá varð mannfall í Rússlandi um 10 miljón manns eða helmingur allar fallinna í seinni heimstyrjöldinni. Rússar hafa því gilda ástæðu til að vera hræddir við ógnina úr vestri. Við verðum virða og skilja þennan ótta þeirra í okkar samskiptum við þá.

Í mínum bókum er ekkert sem gerir Rússana verri en þjóðverja þetta er hinsvegar stór og valdamikil þjóð sem ver hagsmuni sinna borgara með kjafti og klóm. Það sem Rússar eru að gera í Úkraínu er ekki óeðlilegt í ljós þess að fólkið þar er að stórum hluta Rússar og vill vera það Og þegar við bætist að NATO mun að öllum líkindum stækka og færast nær Rússlandi ef stefna Úkraínskra stjórnvalda nær fram að ganga, þá er þeirra íhlutun fullkomlega eðlileg.

Menn viðast vera búnir að gleyma því að Rússum stafar raunveruleg ógn frá Vesturevrópu sem er sögulega meiri en ógnin sem Vesturevrópu stafar af Rússum.

"Rússarnir koma" Þegar ég var pjakkur í sveit var þetta orðtak notað þegar illa stefndi. Ég man eftir hrekk þar sem nýr vinumaður var plataður til að kasta sér niður (í skjól fyrir skothríð) þegar einhver hrópaði "Rússarnir eru að koma" 

Umræðan á íslandi virðist mér enn vera lituð af þessu, Rússarnir er vondu kallarnir sama á hverju gengur.


mbl.is Bjarni: Efasemdir um þvinganirnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Össur er enn ekki að skilja þetta, því miður.

Þessi grein Össurar er eftiráskýring hans á því af hverju hann sá þetta ekki eins og sæmilega upplýstir menn. Össur trúr því enn að evran hafi verið góð hugmynd fyrir Evrópu og að vandræði Grikkja séu einhverskonar mistök í útfærslu eða lélegri stjórnsýslu að kenna.

Menn gera mistök og léleg stjórnsýsla er staðreynd, það hverfur ekki með ESB eða Evru. Þetta átti Össur að vita eins og ég.

Staðreyndin er sú að Evrópa færist nær og nær borgarastíði með hverjum deginum vegna stjórnmálamann eins og Össurar, manna sem eru að fikta við hluti sem þeir ekki skilja.

Það sem er verst "hættulegast" við menn eins og Össur er mælskan. Hún gerir það að verkum að þeir ná að hrífa með sér fjöldann allan af jafnvel vel gefnu fólki sem ekki setur sig inn í málin en treystir á að "þeir" viti um hvað þeir eru að tala.

 


mbl.is Pólitíkusar sekir en ekki almenningur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Málflutningur stjórnarandstöðunnar nær ekki til þjóðarinnar.

Samfylkingin og vinstri grænir eru að þurrkast út í könnunum vegna þess að þingmenn þessara flokka eru sífellt með illa ígrunduð upphlaup á þingi sem standast enga skoðun. Til dæmis þetta, að 1,5 miljarðar af leiðréttingunni hafi farið til þeirra sem greiddu auðlegðarskatt og það á að vera "sönnun" fyrir því að ríkir haf fengið meira en fátækir. ?? eða að þetta hafi verið tilfærsla á fjármunum frá börnum til gamalmenna.

þeir sem hafa einhverja heildarsýn á þessi mál vita í grófum dráttum hvernig þessi leiðrétting fór fram og skilja um hvað hún snerist. þeir vita því sem er að þarna er verið að pota í aukaatriði málsins. Hinir sem ekki skilja þetta eru þá hugsanlegir kjósendur Samfylkingarinnar eða VG. Ef svona  pólitík á að afla fylgis þarf meirihluti kjósenda að vera illa upplýstir fávitar. 


mbl.is Deilt um lækkun húsnæðislána
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn "óheppilegt",fyrir slitabúið að þurfa þá að borga stöðugleikaskattinn.

Tíminn sem þessir menn hafa fengið í þetta er orðinn 6 ár nú þegar. Sem er alltof langur tími.

Staða búanna fyrir dómi hlýtur að vera orðin mjög slæm einfaldlega vegna þess að slitastjórnirnar og kröfuhafar hafa sýnt, með því að aðhafast lítið eða ekkert í 6 ár að þau eru ófær um að leysa málið (slíta búunum).

 


mbl.is Skammtaður of naumur tími
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bílasalar að tjá sig um tækni í bílum.

Þetta er svona ámóta gáfulegt og að fá álit hjá símadömu hjá heilaskurðlækni um heilaskuðlækningar.

Enda stendur ekki steinn yfir steini í þessari frétt eða öllu heldur auglýsingu.

 


mbl.is Dugar rafhlaðan endalaust?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að vera heimskur.

Fólk sem velur sér framtíð í opinberi þjónustu er það sem kallað var heimskt til forna. Það þorir ekki að heiman og skilgreinir því umheiminn eftir frásögnum þeirra sem eiga heimangengt.

Að þora ekki að heiman, á sér oft eðlilegar skýringar. Til dæmis er léleg heilsa fullgild ástæða fyrir því að þora ekki út á hinn almenna vinnumarkað. Konur voru oftar heima og því heimskari til forna, nú vinna þær frekar hjá hinu opinbera og eru því ef til vill enn heimskar.

Það má hinsvegar ekki gleymast að einhver verður að vera heima og verða heimskur. 


mbl.is Veikindi tvöföld hjá hinu opinbera
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fávitahæli.?

Forsætisráðherra eða ríkistjórn borga engin laun. Það eru forstöðumenn stofnanna ríkisins sem fá úthlutað peningum á fjárlögum frá okkur sem greiðum skatta, sem þeir síðan nota til að greiða laun eða bætur til þeirra sem eru á framfærslu ríkisins. En þeir eru uppteknir við að mótmæla sjálfir.!!!

Þetta einfaldlega eins vitlaust og vitlaust getur orði.

 


mbl.is Þögul mótmæli við Stjórnarráðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Opinberir starfsmenn, aumingjar og annað undirmálsfólk.

Á íslandi er tiltölulega auðsót mál að framfleyta sér fyrir duglegt fólk. Atvinnuleysi er lítið og allir sem nenna að vinna geta fengið ágætlega borguð störf í einkageiranum. Íslendingar eru auk þess vinsælir starfkraftar á hinum norðurlöndunum og jafnvel teknir fram yfir heimafólk.

Það sem þið þurfið að læra er, að hætta í vinnunni ef launin eru of lág og fá ykkur vinnu þar sem þau eru betri, svo er alltaf hægt að vinna sjálfstætt. Nú ef þetta gengur ekki þá er það líklega vegna þess að þið eruð ekki jafn verðmætir starfkraftar og þið haldið.

Að rotta sig saman og hætta öll í einu að vinna til þess að eyðileggja fyrir okkur hinum sem vinnum fyrir okkur heiðarlega og erum oft búin að skipta um vinnu og jafnvel stofna fyrirtæki til að hafa mannsæmandi afkomu, er bæði óábyrgt og ljótt. 

Það er líka misskilningur hjá ykkur að menntun á okkar kostnað sé líka ávísun á laun á okkar kostnað. Menntunin sem þið fáið á okkar kostnað á gera ykkur hæfari og að hjálpa ykkur að finna vinnu sem skapar verðmæti sem geta svo verið grundvöllur fyrir hærri launum. Sú vinna á helst ekki að vera hjá hinu opinbera því þar vinna of margir nú þegar.

 

 


mbl.is „Það verður að fara að ljúka þessu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband