16.5.2015 | 11:51
Verkföll nútímans eru afleiðing þrælslundar.
Þeir sem mæta í vinnu í ár eða áratugi án þess að þiggja næg laun fyrir eru það sem kallað er þrælslundaðir.
þrælslundaðir menn vinna og þjóna herranum án þess að fá sómasamlega greiðslu eða viðurkenningu fyrir. Uppúr sýður svo þegar Þeir fá "kjark" í formi hópeflis sem endar með verkfalli.
Þannig er vandamálið (verkföllin) afleiðing þrælslundar starfsmanna gagnvart vinnuveitandanum. þessir menn eru flestir í vinnu hjá ríkinu. Á nútíma íslandi þarf í reynd engin að vinna fyrir of lág laun nema hann langi til þess.
![]() |
Staðan yrði algerlega fordæmalaus |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.5.2015 | 11:14
Eurovision á yfirfalli eins og alltaf.
Um daginn var frétt þar sem fullyrt var að 90% íslendinga fyldust með Eurovision sem er víst heimsmet. Raunin er sú að þeir sem horfa á fréttir á íslandi fylgjast með Eurovison einfaldlega vegna þess að það er lítið annað í fréttum fjölmiðla þennan tíma.
Í gær var þáttur á ruv þar sem einhver hafði dundað sér við að setja ljósmyndir af ABBA (sem vann Eurovision fyrir löngu síðan), saman í heila kvikmynd. Aðal frétt dagsins (Að mati ruv) var vitanlega ferð íslendinga utan að taka þátt í Eurovision og, að álitsgjafar hafi verið yfir sig hrifnir af laginu. þetta er raunar sama fréttin og í fyrra og hittifyrra, og gott ef ekki alltaf, nema kannski þegar Ágúusta Eva fór fyrir hönd íslands.
Ekki veit ég hvað veldur þráhyggju íslenskar fjölmiðla gagnvart Eurovision en hún er greinileg og virðist síst fara minnkandi.
![]() |
Talið niður að Eurovision: 7 dagar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.4.2015 | 10:35
Hver er tilgangurinn með svona bull frétt.?
Það var svipuð frétt um kínverskan bíl sem átti að líkjast landróver um daginn. Fyrir mér er engin leið að sjá meiri líkindi með þessum bílum en hverjum öðrum, þetta lítur allt meira og minna eins út og allt apað upp eftir öðru. þessi forljóti BMW er til að mynda líkur afburða ljótum bíl frá Kóreu sem sem var vinsæll fyrir nokkru, ég man samt ekki hvað hann heitir. En svo virðist þessi kínverski toppa þá báða í keppninni um ljótasta farartæki jarðar.
Það þarf mjög einbeittan vilja til að sjá mikil líkindi með þessum tveim
Kína bíllinn er sá efri.
![]() |
Eftirlíking af BMW i3 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.4.2015 | 12:43
Öfgar í allar áttir.
Samhengislaust rugl og öfgar í allar áttir er það sem mér dettur einna helst í hug við lestur frétta af þessu.
Á sama tíma og barist er gegn því að góðgerðafélög fái að gefa hjálma í skólana og kennurum bannað að fara í kirkjur með börn eða jafnvel hafa yfir höfuð skoðun á trúmálum þá er sama fólkið að berjast fyrir því að félagsskapur með kynhegðun sem venjulegt fólk er lítið spennt fyrir, fái að kynna sína kynhegðun inn í skólunum landsins.
Af hverju ætti að vera í lagi að samtök 78 fari inn í skóla landsins að breiða út sinn boðskap en ekki Ásatúrafélagið eða Eimskip ?
![]() |
Háð, rógur, smánun og ógnun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
19.3.2015 | 11:31
Túristar í leit að norðurljósum
Ég kom Kjöl um daginn í slæmu veðri og litlu skyggni. Eftir að komið var niður fyrir Gullfoss skömmu fyrir miðnætti fór að bera á ummerkjum eftir túrista, fastir jeppar og smábílar sem skildir höfðu verið eftir um allt og enn var fólk í sumum þessara farartækja. Þegar komið var í Mosfellsbæ stoppaði ég til að ræða við ferðafélaga mína. Stoppar þá á sama stað útlendingur á smábíl, steig út, kom til mín brosandi út að eyrum og sagði á illa skiljanlegri ensku "war ist dehh nordenlikdens" sem held held að haf átt að útleggjast "hvar eru norðurljósin". ég benti manninum upp í loft. Hann góndi góða stund upp í sortann og spurði svo "var has du bin" sem ég taldi vera spurningu um hvar ég hafi verið. Við komum að norðan, sagði ég á ensku, kallinn virtist telja það algerlega fullnægjandi svar, brosti út að eyrum og stökk aftur upp í bílinn.?
Okkur fannst þetta voða fyndið og einhver spurði hvort túristafyrirtækin væru bara með samninga við útlend fávitahæli.
En svona eftir á að hyggja þá er þetta kannski bara sorglegt.
![]() |
Björguðu tveimur ferðamönnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.3.2015 | 12:40
Það er pólitíst sjálfsmorð fyrir stjórnmálamenn að hanga á þessari dauðu aðildarumsókn.
Stuðningur stjórnmálamanna við hluti sem ekki eru raunhæfir geta aðeins skilað fylgi ef almenningur skilur ekki málið. Almenningur á ísland skilur orðið aðildarferlið að esb og stöðu þess í megin dráttum og málflutningur Samfylkingarinnar og annarra öfga ESB sinna er úr fasa við það sem raunverulega er að gerast í málinu, og því hrynur af þeim fylgi.
Aðildarumsóknin frá 2009 er stopp vegna tæknilegra atriða og ef halda á áfram með hana þarf að breyta lögum á alþingi um fiskveiðastjórn og fleira sem engin leið er að koma i gegn um þingið.
Það er í reynd útilokað að koma þessari aðildarumsókn áfram nema að Samfylkingin og aðrir öfga aðildarsinnar hafi meirihluta á alþingi. það mun ekki gerast í fyrirsjáanlegri framtíð og því er þetta stein dautt mál.
Það eina sem hefst upp úr þessu þrefi hjá Samfylkingunni er að fleiri og fleiri setja sig inn í málið og skilja stöðuna sem aftur veldur því að fylgið minkar jafnt og þétt. Píratar og Björt framtíð fara sömu leið ef þeir haf ekki vit til að hætta í tíma.
![]() |
Kann engin orð yfir vonbrigðin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
20.2.2015 | 10:55
Gosinu gæti lokið hvenær sem er.
En er líklegt að því ljúki í sumar ?
Ég held að þessir atburðir í heild sinni séu þess eðlis að þeir geti tekið mjög langan tíma.
Skiptum þessu upp.
Fasi 1, Öskjusig samfara myndun Kvikugangsis.(Lokið)
Fasa 2, Öskjusig samfara hraungosi. (Er að ljúka)
Fasi 3, Er Hraungos sem ekki er beint tengt sigi í öskju Bárðarbungu (Er hugsanlega að hefjast.)
Stærð fasa 3 í flæði er alltaf verulega minni en þess sem kom á undan en slíkt gæti hinsvegar dregist mjög á langinn og varað í ár eða jafnvel áratug sem þýðir að heildar stærðin gæti orðið mjög mikil.
Í líkaninu sem er í viðhenginu er líkleg stærð fasa 3 reiknuð um 26 rúmmetrar á sekúndu. þetta þýðir að eftir 2 ár yrði Fasi 3 orðinn stærri að rúmáli en fasar 1 og 2. Þetta mundi gera Holuraun að nýju fjalli, dyngju í líkingu við Trölladyngju.
Ég tel 50% líkur á að þetta komist á fasa 3.
![]() |
Verði búið fyrir sumarið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.1.2015 | 22:37
Stríð eða friður eru ekki einhliða ákvarðanir pólitíkusa.
Það er bara hægt að ákveða að verjast ekki árásum eða að gera ekki árás á eitthvað.
Áður en Hitler tók Frakkland fyrir bráðum 75 árum síðan mátu franskir pólitíkusar stöðuna svipað og Manuel Valls nú. þeir voru ekki í stríði. Fimm árum seinna var þeim bjargað úr klóm nasismans með blóði og svita manna sem vörðust.
![]() |
Ekki stríð við múslima |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 14.1.2015 kl. 08:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.1.2015 | 09:36
Olíusíur eru einföld tæki.
Þegar lengt er á milli olíuskipta eins og gert hefur verið hjá flestum framleiðendum bíla undanfarin ár þá hefur það oftast verið það gert með því að nota gisnari (lélegri) olíusíur sem eru samt kannski nógu góðar til að koma vélinni út úr ábyrgð.
Síuframleiðendur gefa upp hvað nota má síurnar lengi. Ef markmið manna er að fara vel með vélarnar sínar þá er öruggast að skipta sem oftast um síur og nota síur frá framleiðendum sem leyfa styttri akstur á milli olíuskipta en framleiðandi bílsins og skipta vitanlega oftar um síu.
Sem sagt langur tími á milli síuskipta kallar á lélegar síur og öfugt.
Efni í olíusíum nýrri bílvéla er haft gisnara til að lengja á milli olíu og síuskipta. Ef að óorginal olíusía skemmir vél þá er það oftast vegna þess að hún er fínni og stíflast því hraðar en orginalsían.
![]() |
Upprunalegar síur skipta miklu máli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.1.2015 | 09:23
Frá Utøya til Charlie
Er styttra en kann að virðast í fyrstu. Skotmörkin eru einstaklingar sem í einfeldni vilja að öll dýrin í skóginum séu vinir. Morðingjarnir eru þeir sem telja þetta ógn við sína menningu eða trú.
Kannski þarf ekki að teikna móðgandi myndir af trúarlegum leiðtogum til að uppfylla kröfur lýðæðisþjófélagsins um tjáningarfrelsi og kannski þarf ekki að byggja moskur eða kirkjur til að iðka trú?
![]() |
Umsátrið stendur enn yfir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)