Færsluflokkur: Bloggar
12.2.2020 | 13:03
Græni starfsemi
en álframleiðslu í Straumsvík er snúið að finna.
1. Álverið er þarna núna og ekki úrelt, þannig er verið að henda gríðarlegum verðmætum sem kostar mikla orku að búa til annarstaðar.
2. Ál framleitt á íslendi er hagkvæm og umhverfisvæn leið til að flytja græna orku úr landi.
Hvað ætlar Björt að setja þarna í staðin ? Kannski gagnaver sem grafa á eftir rafmynt engum til gagns.
![]() |
Græn starfsemi í stað mengandi stóriðju |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.2.2020 | 12:46
Ný mælitæki, ný heimssýn.
Þessi stórgóða mynd af Reykjanesi er gerð með geislunarmælingum frá Sentinel-1 gervitunglunum. Mæliupplausn á að vera nálægt 5 mm. Ljóst má vera af þessu að Formbreytingarnar sem eiga sér staða á Reykjanesi núna eru alls ekki það sem menn bjuggust við samfara eldsumbrotum þarna Og koma frekar illa heim við þær kenningar sem viðteknar eru um svæðið.
Óróamælingar benda til lítilla eða engra kvikuhreyfinga en samt rís land hratt og skjálftavirkni er mikil. Þó litið væri framhjá skorti á merkjum um kvikuhreyfingar þá lítur landrisið út eins og kvikhólf sé undir Þorbirni sem passar ekki við fyrri kenningar.
Formbreytingarnar á Reykjanesi eru keilulaga, engu er líkara en að undir Þorbirni sé staur kannski 500 metrar í þvermál sem ýtir honum upp. En land hefur líka sigið í kring og virðast heildar rúmálbreytingarnar á svæðinu vera 0.
Hvað veldur ?
Hugsanlega er jarðskorpan að slitna í sundur á um 0 til 4 km dýpi undir Þorbirni vegna reks Ameríku frá Evrasíu en neðar er skorpan heit og seig og hangir samann. Í rifunni er tóm til að byrja með en hún fyllist af gasi, vatni eða kviku í fyllingu tímanna.
![]() |
Þetta vofir yfir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 20.2.2020 kl. 20:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.1.2020 | 12:57
Kaldar eru kveðjurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.1.2020 | 10:34
Um ætlað hraungos í Grindavík
Þessi mynd var birt með frétt um "væntanlegt" eldgos í Grindavík. Hún sýnir þau undirliggjandi gögn sem upphlaupið í Grindavík byggir á. Heildar hækkun lands er nú um 30 mm sem er ígildi um 0,002 rúmkílómetra. Rúmálsbreytingarnar í Bárðarbungu 2014 voru 1,5 rúmkílómetri og Holuhraun varð samtals 1,5 rúmkílómetrar, það er að segja, kvikan sem hreyfist til að búa til þessa kúpu í Grindavík er um það bil einn þúsundasti af Holuhrauni.
Það sem er kannski meira athyglisvert er að myndin sýnir að þarna ekki um hægar kvikuhreyfingar að ræða eins og voru í Kröflueldum eð Holuhrauni heldur er hér ljóslega öldu hreyfing sem orsakast af "sprengingu" eða atburð sem nær að búa til áhrif sambærileg því sem gerist þegar steinn fellur í sléttan vatnsflöt. Þarna er engu líkara en að bankað sé í jarðskorpuna að neðan.
![]() |
Jarðskjálfti 2,4 að stærð vestan við Þorbjörn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.1.2020 | 10:09
Vandi heilbrigðiskerfisins á Íslandi er augljós.
Svandís Svavarsdóttir mun samt aldrei taka á honum því það færi beint gegn hennar lífsviðhorfum. Svandís er dóttir Svavars Gestssonar sem stundaði nám hjá Austurþýska kommúnistaflokknum í Berlín á sjöunda ártug síðustu aldar. þaðan á Svandís sínar fyrstu minningar. þau feðgin urðu fyrir stærsta áfalli lífs síns þegar Berlínarmúrinn féll. þá var Svandís 26 ára. Ég minnist blaðagreina og viðtala við Svavar frá þessum tíma sem öll voru samhengislaus reiðilestur og flótti frá raunveruleikanum. Nokkrum árum seinna birtist svo Svandís í íslenskri pólitík eins og afsteypa pabba síns, öskureið vegna falls múrsins, með það helst að markmiði að hefna fyrir ósigur kommanna í Berlín.
Það sem varð Austurþýskulandi að falli var fyrst og fremst ríkisrekinn áætlanabúskapur í öllu.
Það vill til að þetta er líka það sem er að Íslenska heilbrigðiskerfinu og fólk eins og Svandís mun verja það kerfi með kjafti og klóm fram í rauðann dauðann.
![]() |
Bráðalausn á vanda bráðamóttöku ekki til |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.1.2020 | 09:57
Óskiljanlegar fréttir af ætluðu stríði.
Hér ætla ég að gera tilraun til að útskýra málið í stuttu máli án þess að gera ráð fyrir að Trump sé fáviti sem ætlar í stríð.
Bandaríski herinn BH er sá öflugasti í heimi. Bandaríska þjóðin gæti farið í stríð við heiminn og samt átt ágæta möguleika á "sigri" eða í það minnsta meiri en þjóðverjar þegar þeir hafa farið í þá vegferð. Risanum stýrir um þessar mundir Donald nokkur Trump sem hefur það yfirlýsta markmið að draga úr viðveru BH í miðausturlöndum.
Árásinn á Soleimanis og félaga í Írak var taktísk lausn á vandamáli sem BH hefur verið að glíma við undanfarin áratug á svæðinu. BH hefur byggt upp innviði í landinu í samvinnu við meirihluta íbúa þess sem samt vilja ekki hafa BH í landinu og halla sér til Írans og vilja þjóðnýta mannvirkin og innviðina í þágu íslam. Fyrirætlanir stjórnvalda í Irak sem sitja í umboði BH eru ávísun á blóðbað sem BH getur illa verið bendlaður við. Írösk Stjórnvöld bjóða svo mönnum sem hafa það yfirlýsta markmið að útrýma Gyðingum og Bandaríkjunum í kurteisisheimsókn sem gerir ástandið óbærileg fyrir BH.
Drápið á Soleimanis skerpir línurnar og auðveldar BH að yfirgefa Irak án eftirmála eins og urðu í Sýrlandi, þar sem vesturveldin fundu BH allt til forátu vegna brottfararinnar.
Hvort þetta takist er svo annað mál, en þetta er í það minnsta skýring sem er í einhverju samhengi við raunheima.
Kannski er bandaríski herinn á leið frá Írak og Donald Trump ekki fáviti.
![]() |
Bandaríkjaher undirbýr brottflutning frá Írak |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.1.2020 | 15:04
Er Guðmundur Ingi umhverfissóði ?
Þessi ummæli benda til þess að umhverfiráðherra hendi plastmálum og öðru slíku óflokkuð í í ruslið til urðunar. Og hann má hafa slæma samvisku yfir því.
Ég og mitt fólk gætum þess hinsvegar að endurnýta og flokk allt plast.
![]() |
Ekki ásættanlegt háttalag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.12.2019 | 18:37
Að ýta undir og hvetja til glæpa er líka glæpur.
Blaðamenn sem heimta viðbrögð frá lögreglustjóra og dómsmálráðherra í óupplýstu glæpamáli eru í reynd að ýta undir að þær brjóti illa af sér í starfi. Sem betur fer eru þessar heiðurskonur ekki slíkir óvitar og víkjast undan að svara.
Það sem er samt athugavert við frammistöðu þeirra er að þær benda ekki blaðamönunum á að þeir eru að biðja þær um að fremji glæp sem er saknæmt.
![]() |
Treystir því að lögreglan vinni faglega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.11.2019 | 11:42
Vindmillur og batterí auka bara á heildarlosun CO2.
Ég hef verið að reyna að útskýra þetta í 20 ár fyrir daufum eyrum.
Stjórnmálamenn hafa í reynd bara einn valkost til að koma í veg fyrir áframhaldandi aukningu CO2 og annarra virkari gróðurhúsaloftegunda í andrúmslofti.
Lausnin er að fækka mönnum á jörðinni um 6-8 milljarða.
Í dag er mesta hættan sem stafar að mannkyninu að öfgafyllstu "græningjarnir" fatti þetta og fari í þá lausn.
![]() |
Magn gróðurhúsalofttegunda aldrei meira |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.11.2019 | 18:28
Dallurinn mun sökkva.
Lausn Gretu og Katrínar í umhverfismálum er ígildi þess að ausa sökkvandi olíuskip með teskeið, mun engu breyta og dallurinn mun sökkva.
CO2 er núna 0,04% í andrúmslofti og mun halda áfram að aukast að kalla má jafn hratt þó svo að allur hinn vestræni heimur fari að öllum "ráðum" Gretu og Katrínar.
Rafmagnsbílar og vindmillur minnka einfaldlega ekki losun CO2 þegar á heildina er litið vegna þess að þessi tæki auka á heildar orkunotkunina sérstakleg á framkvæmdatímanum og aukningin verður að koma frá jarðefnaeldsneyti. Og jafnvel þó heiminum yrði bylt yfir í kjarnorku á næstu 50 árum mundi það einungis hægja lítillega á ferlinu.
Eina lausnin sem mundi virka til að koma í veg fyrir að CO2 tvö eða þrefaldist á næstu öldum er að fækka mönunum á jörðinni, og þeim þarf þá að fækka um 80-90% til að lækka CO2 hlutfallið frá því sem nú er. Er einhver að fara í þá vegferð ?
Þess vegna eru markmið Katrínar og Gretu ekki raunhæf.
Ljósið í myrkrinu er að flesti bendir nú til þess að jafnvel 0,1 til 0,2% CO2 í andrúmslofti muni einungis hafa óverulegar breytingar á loftslagi jarðarinnar för með sér.
Dallurinn er sem sagt á grunnu vatni og mun standa nær allur ofan vatns þó hann sökkvi.
Það skiptir þá máli að átta sig á að þeir sem fara ofan í kjöl að ausa með teskeiðum eru ekki til gagns á meðan.
Ég og Trump ætlum að einbeita okkur að hlutum sem skipta máli.
![]() |
Formlega óskað eftir úrsögn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 28.1.2020 kl. 13:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)