Færsluflokkur: Bloggar
19.7.2018 | 11:17
Stjórnmálamenn með bannaðar skoðanir.
Eru ekki velkomnir til íslands.
Lögregluembættið á að hafa á reiðum höndum, lista með öllum þeim erlendu stjórnmálamönnum sem eru með bannaðar skoðanir og stöðva þá í Leifsstöð.
Ég legg til að Samfylkingin og Píratar verði fengin til útbúa listann, vegna þeirrar sérfræðiþekkingar sem þau búa yfir á bönnuðum skoðun.
![]() |
Gekk burt þegar Kjærsgaard hóf ræðu sína |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.7.2018 | 08:13
Kol röng þýðing, lygafrétt
"ESB versti óvinur Trumps."
Orðið, foe, þýðir andstæðingur eða mótherji en ekki óvinur í þessu sambandi. Mótherjar í fótboltaleik er venjulega vinir þó þeir séu alltaf andstæðingar. það er klárlega það sem Donald Trump er að segja í þessu viðtali. Hann segir beinlínis að ESB séu vinir sínir en andstæðingar í viðskiptum.
Eina tilfellið þar sem réttlætanlegt gæti verið að þýða orðið foe sem óvinur væri ef aðilar máls væru í stríði og hlustendur vissu það.
Þannig er þessi íslenskun fréttarinnar hrein og klár lygi frá upphafi til enda.
![]() |
ESB versti óvinur Trumps |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.7.2018 | 17:36
Rasísk afstaða
Til fallega fólksins er mannvonska af verstu sort. Allir hafa sína kosti og galla og eiga að hafa jafnan rétt til nýta sér kostina. Margar af þessum konum sem við sjáum bregða fyrir eiga ekkert nema útlitið og hafa oft lagt mikið á sig til að öðlast það.
![]() |
Hætti að leita fallegra kvenna í stúkum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.7.2018 | 17:42
Dómar um eigin ágæti eru oft broslegir.
Eins og ég sé þetta myndband blasir við að ef vegriðið hefði ekki verið þarna hefði verð nóg pláss fyrir framúraksturinn og að mæta bílnum á veginum. það er að segja, vegrið olli slysinu.
![]() |
Myndband af árekstri á Hellisheiði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.5.2018 | 08:41
Aðrir valdalausir , hverjir eru það ?
"Einn borgarfulltrúi getur tekið virkan þátt með félögum sínum í að byggja upp samstöðu meðal láglaunafólks, innflytjenda, leigjenda, eftirlaunafólks, öryrkja og annarra valdalausra hópa"
Það er sem sagt þannig, að það sem þessi stjórnmálaflokkur ætlar að gera á kjörtímabilinu er að vera í hagsmungæslu fyrir valda hópa.
Ég tek sérstaklega eftir hópnum "aðrir valdalausir" Þannig er hægt að búa til nýjan hóp aumingja um hvað sem er.
Mér dettur strax í hug hópur þeirra sem eru með mikið krullað hár þeir eiga mjög bágt og þurfa að eyða miklum peningum og tíma í að laga á sér hárið. Davíð Oddsson er dæmi um þetta hann hann er alltaf eins og skrattinn hafi skitið honum um hárið. Væri ekki bara samgjarnt að krulluhærðir fengju hárgreiðslu á kostnað ríkisins.
![]() |
Taka ekki þátt í meirihlutaviðræðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.5.2018 | 12:37
Þar kom að því, Ísland vann júrovison.
Sigurvegari 2018 er Emiliana Torrini, með sitt stórgóða lag Jungle drum. Þrátt fyrir að feita kellingin með Björk Guðmunds blætið sem flutti lagið hafi farið illa með og skreyt það illa með óþarfa slaufum.
![]() |
Ísrael vann Eurovision |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.5.2018 | 10:10
Sumir eru einfaldlega vitlausari en hinir.
Sveitarstjórnar menn sem telja að nauðseinlegt sé að breyta mælikvörðum til að mikið skuldsett bæjarfélög fá hærri einkunn eru einmitt í sveitastjórnum sem fá lágar einkunnir vegna skulda. það kemur ekki að óvart.
En breytingin sem þeir gera en kostuleg, Þeir taka skuldirnar út úr jöfnunni og fá þá út að skuldsettustu sveitarfélögin séu betur rekin en hin.???
Skuldsett sveitafélög eru einmitt með meira aðhald í sínum rekstri vegna þess að þau skulda mikið en ekki vegna þess þau eru vel rekin , sem þau eru vitanleg ekki, þau skulda vegna þess að hafa verið illa rekin í fortíð.
Sumir eru einfaldleg vitlausari en hinir og þannig verður það alltaf en dapurt er hvað vitleysingarnir virðast eiga greiðan aðgang atkvæðum á íslandi.
![]() |
Samanburður SA sagður villandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.5.2018 | 18:02
Hitlersæskan virkaði ekki heldur.
Við sem þekkjum söguna vitum hvað Hitlersæskan var. Við vitum að þeim sem að því stóðu gekk gott eitt til, þeir trúðu því að hægt væri að ala upp fyrirmyndar þjóðfélagsþegna á stofnunum. En við sem þekkjum söguna vitum líka að þetta reyndist rangt og hafði hræðilegar afleiðingar fyrir samfélagið og einstaklingana.
Það sem hefur gerst undanfarin 50 ár á Íslandi og víðar er að ríkið hefur tekið að sér uppeldi barna í sífellt meira mæli. Nú er svo komið að meira en helmingur uppfræðslu og félagslífs ungmenna á íslandi er í höndum kennara sem oftast ráð alls ekki við verkefnið.
Börn eru nánast hætt að umgangast fullorðið fólk, nema kennarana. Þeir eru ríkistarfsmenn, sérstök tegund fólks, að uppistöðu vinstrimenn sem líta hornauga á alla sem skara frammúr, skortir sköpunargáfu og hafa það megin markmið seinnihluta starfæfinnar að komast sem léttast frá hverjum degi.
Ein birtingamynd á þessu er þegar ríkið ákvað að stoppa einelti í skólum (létta vinnu kennara). Þá var ráðist í að uppfræða börn niður á leikskólaaldur um einelti og þeim sagt að þau eigi að tilkynna um slíkt. Þar var í reynd bara verið að gera börnin ábyrg fyrir eineltinu sem þau vitanlega ráða ekkert við og ástandið versnaði til muna, færist aftar í aldri því mannfólkið verður jú alltaf að finna sér sinn stað í samfélaginu. þetta er bara eitt dæmi þar sem stofnun tekur að sér hlutverk sem hún ræður ekkert við og afleiðingarnar eru hræðilegar.
![]() |
Alvarlegt og vaxandi vandamál |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 9.5.2018 kl. 08:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.4.2018 | 13:00
Vitleysingar með gráður
Háskólinn er hættur að virka prófin eru að verða einskis virði. Háskólar eru að útskrifa 25 ára fólk með masteragráður sem eru ígildi barnaskólprófs fyrir 50 árum síðan. Einstaklingar með IQ undir 85 eru að útskrifast af því þeir voru duglegir að læra í barnaskóla ? Það gengur einfaldlega ekki.
Atvinnulífið þarf stjórnendur sem eru sæmilega vel læsir og klárir í kollinum en ekki duglega vitleysinga.
Íslenska skóakerfið er komið að fótum fram vegna þess að fólkið sem stýrir því er að uppistöðu duglegir vitleysingar með mastersgráðu.
Ein birtingamyndin er svo þessi kynjahalli í skólunum. Vitleysingarnir með háskólagráðurnar trúa að allir geti orðið stjórnendur og hamingja kvenna felist í háskólagráðu, þeir gera því öllum stúlkum kleift að fá slíka með því að aðlaga námið að þörfum þeirra og sturta meira og minna öllu háskólanámi í ruslið í leiðinni.
![]() |
Helmingur kvenna með háskólapróf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.4.2018 | 09:30
Vandi Tesla er tæknilegur.
Það sem Tesla ætlaði að gera var að framleið samkeppnishæfa (ódýra) og umhverfisvæna rafmagnsbíla. Hvorugt hefur tekist. Tesla er fok dýr vara og alls ekki umhverfisvæn og kaupendahópurinn er ríkir sérvitringar.
Markaðurinn sem Tesla er á núna er allt annar en sá sem fyrirtækið ætlaði sér í upphafi. Kaupendahópurinn er helst ríkir gamlir karlar með fullt rassgat af seðlum sem er nákvæmlega sama um umhverfisvernd eða sjálfbærni (nema á markaðslegum forsendum). En samt virðis Musk takast að halda í þá ímynd meðal fjölmiðla að Tesla bílar séu umhverfisvænir.
Það er í reynd með ólíkindum hvað fyrirtækinu hefur tekist að halda sér á floti miðað við að tækileg markmið þess eru að heita má jafn langt frá því að nást og þegar það var stofnað 2003.
![]() |
Áfram lækkar Tesla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)