Færsluflokkur: Bloggar
20.12.2023 | 16:20
Rýmingar þurfa að vera í höndunum
Á fólki sem skilur til hvers þær eru og hvenær þær gætu komið að gagni. Ég held að allar rýmingar á íslandi undanfarna ártugi hafi verið gerðar of seint, og eftir að atburðir þeir sem þær hugsanlega gátu varið fólk fyrir höfðu átt sér stað. Til dæmis snjóflóð á Flateyri og aurflóð á Seiðisfirði.
Það er líka augljóst að opinberar rýmingar í Grindavík hafa bara verið til ógagns fyrir íbúana fram að þessu og líkur á að það breytis með áframhaldandi lokunum/rýmingum eru litlar.
Fólkið sem hefur fengið þessi völd til rýma með nauðung virðist allt vera nógu einfalt til að trú því sjálft að það raunveruleg geti séð fyrir hvar og hvenær gjósi. En atburðir liðinna ára segja okkur allt aðra sögu. Kannski er aðal vandinn sá að það nennir engin að hlusta á þau ef þau segja eins og er "ég veit það ekki."
![]() |
Þurfum að endurskoða okkar rýmingarvinnu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.12.2023 | 09:56
Það er skrítið að búa í landi
Sem virðist fyrirlíta nasisma í orði en veitir á sama tíma milljörðum króna til stríðsrekstrar í Evrópu gegn rússnesku þjóðinni, þjóðinni sem fórnaði 20 milljónum þegna sinna til að kveða niður nasisma í Evrópu fyrir um 80 árum síðan. Allir sem hafa minnsta skilning á sögu tuttugustu aldar vita að ef Rússar hefðu ekki varist og snúið sókn nasistanna við í austur Úkraínu 1942 hefði nasismi líkleg orði ofaná í Evrópu. Við þurfum að skilja að þeir sem nú eru við völd í Úkraínu er sami armur stjórnmálanna og vann með nasistum 1938-45 og þjóðarbrotin í Evrópu sem nú hilla foringja "fyrrum" nasista í Evrópu (Zeleskyy) eru meira og minna öll þau sömu og lögðu niður vopn og afhentu nasistunum lyklana að stjórnaráðum sínum á árunum 1938-41. Zelenskyy var til að mynda hylltur með viðhöfn í norska þinginu í síðustu viku.
Á árunum 1938 til 41 sameinaðist 70-80% af þjóðum heims (mælt í framleiðslugetu) undir merkjum Bandamanna gegn nasisma í Evrópu sem endaði með sigri þeirra 1945. Nú í desember 2023 hafa verið að hittast á fundum leiðtogar fjögra þjóða (Kína, Rússland, Indland og Iran) sem fara saman með yfir 70% af framleiðslugetu heimsins. Það vill til að á sama tíma eru Rússar aftur að snúa vörn í sókn á sama stað og 1942 í austur Úkraínu (sem þá á var Sovét-Rússland).
Myndbandið hér fyrir neðan er ekki fyrir viðkvæma. Ég set það hér inn til að minna á að átökin fyrir botni miðjarðarhafs núna eru villuljós og barnaleikur við hliðina á því sem er að gerast á austurvígstöðvunum. Fallnir og særið í Rússlandi-Úkraínu eru að lámarki vel á aðra milljón manns bara á þessu ári en á gasa eru þetta undir 50 þúsund.
![]() |
Aftur vart við nýnasistaáróður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.12.2023 | 11:19
Útúrsnúngar í "fréttum"
Höfundur þessa pistils gerir hálfsannleik að aðalumfjöllunarefni og sleppir aðalatriðunum sem koma samt ágætlega fram ef greinin er lesin í samhengi.
Mannfall á austurvígstöðvunum er ekki hægt að meta með vissu. Við vitum hinsvegar að það eru rússneskir hermenn þar núna að murka lífið úr restinni af natoliðinu þar. Ef Rússneski herinn væri raunverulega búinn að missa 87% af þjálfuðum hermönnum sínum á undanförnum 20 mánuðum mundi það þýða að herinn sem þeir eru með þar núna væri að uppistöðu krakkar og fyrrum skrifstofumenn, blautir á bak við eyrum og illa þjálfaðir.
Alvöru fréttamaður mundi benda á að útlokað sé að þessar tölur um mannfall og/eða heildarstærð mannafla í rússneska hernum geti át eitthvað skylt við raunveruleikann.
Hvernig telur maður skriðdreka ? Rússar áttu um 1.500 brynvarða þunga skriðdreka (MBT) með 21. aldar tæknibúnaði í byrjun árs 2022 og um 2.000 létta skriðdreka (IFV) undir 20t. Eldri en óuppfærð tæki í geymslum (vantar nætursjón og fl) voru minnst 15.000 MBT og eitthvað minna af IFV um 10.000 (þetta er samt mjög óljóst gætu verið mun fleiri). Samtals höfðu Rússar því aðgang að um það bil 30.000 misgóðum brynvörðum tækjum sem kalla má skriðdreka í byrjun árs 2022. Þessu til viðbótar hafa þeir verið að framleið ný tæki í meira mæli en áður undanfarna 20 mánuði sem þýðir að það koma nokkrir tugir nýrra MBT og IFV í flotann mánaðarlega. Samkvæmt tölum sem koma fram í greininni hafa Rússar misst 2.200 skriðdreka af öllum gerðum frá því í febrúar 22 . En við vitum að uppistaðan af ónýtu tækjunum sem við fáum myndir af eru gömul tæki sem hefðu oft ekki talist með þeim 3500 skriðdrekum sem Rússar eru sagðir hafa át í byrjun. Raunveruleikin er því sá að Rússar eru líklega ekki með ver búin her hvað skriðdreka varðar í dag en í febrúar 2022.
![]() |
Um 315.000 látnir eða særðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.12.2023 | 10:03
Geta grasætur orðið kjötætur ?
Það er því miður frekar fátítt að fólk sem byrjar á því að trúa kaupmönnum og fyrir heilsu sinni og borða gras hafi vilja og yfirsýn til að hætta því.
Sykur og sterkja í sambland við ýmis snefilefni í plöntum gerir okkur mennina þróttlitla og þunglynda á nokkrum mánuðum. Grænmetisætur lifa því í þokukenndri veröld sem þær sjaldan rata út úr sjálfar fyrr en dauði eða alvarlegur heilsubrestur rekur þær aftur í kjötát.
Mæðgurnar virðast vera hólpnar en það vekur athygli mína að þær virðast halda að venjulegt kjöt sé ekki holt heldur þurfi að vera búið að stimpla það með einhverjum grasstimpli til að það sé holt og það sem er verra, þær eru enn að borða grasið sem gerði þær veikar ??
Ég stend á sextugu í dag. Í 50 ár borðaði ég mest kjöt og og var semlega heilsuhraustur. Feit kjöt hefur alla tíð verið minn uppáhalds matur. Fyrir um tíu árum síðan tók kærastan mín upp á því að trúa kaupmönunum og reyna að bæta heilsuna á heimsfólkinu með plöntum. Það tók mig um það bil 5 ár að sjá að þetta hafði þver öfug áhrif á mig og raunar alla á heimilinu. Ég hef undanfarin 5 ár þurrkað út allar plöntur í mínu fæði og heimilisfólkið borðar meira kjöt en áður. Árangurinn er sá að við eru öll hraustari og sáttari í eigin skinni og ég er aftur kominn með heilsuna sem hafði þegar ég kynntist kærustunni um síðustu aldamót.
Ég sniðgeng hinsvegar vörur sem eru merktar grænar eða náttúrulegar með langri innihaldslýsingu á stórum pakkningum. Slík dygðaflöggun er að mínum dómi vísbending óheiðarlega kaupmennsku.
![]() |
Margrét og Helga Gabríela byrjuðu aftur að borða kjöt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 20.12.2023 kl. 23:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.11.2023 | 23:15
Gengjastríð á hæsta stigi.
Gengjastríð geisar um þessar mundir fyrir botni miðjarðarhafs. Gengin kalla sig Hamas og Likud. Gengin hafa það bæði að megin markmiði að koma hvor öðru fyrir kattarnef og taka yfir stjórn svæðisins. Vit virðist vera mjög takmarkað í báðum herbúðum og þeir einir komast áfram í gengjunum sem eru öfga og ofbeldismenn. ekki ólík og gengur og gerist í glæpagenjum stórborga. Útkoman er þjáning almennings sem býr á svæðinu.
Pólitískir leiðtogar um allan heim, sem engar skýrar tengingar hafa við gengin hafa undanfarnar vikur verið að lýsa yfir stuðningi við þau. Fljót á litið gæti maður því haldið að um trúarbragðastríð sé að ræða en það er samt ekkert í trúarbrögðum þessara aðila sem kallar á útrýmingu trúarbragða eða kynþátta af svæðinu.
Eins og horfir í þessu núna eru líkur á að annað gengið vinni sigur á næstu misserum. Við það verður til nýtt og stærra vandamál. Sigurvgaranir verða áfram illa upplýstir öfga og ofbeldismenn, en með meira ego.
![]() |
Hamas sleppir gíslum: Komnir til Ísrael |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.11.2023 | 12:04
Íslensk stjórnsýla á hvolfi.
Grindvíkingar hafa þurft að þola mikið síðustu vikur. Harðir jarðskjálfta sem hafa eyðilagt eignir sumra þeirra og sumir geta ekki hugsað sér að búa í Grindavík lengur. Það er mikilvægt að þeim sé hjálpað til að koma sér fyrir annarstaðar.
En það er líka mikið af lítið og óskemmdum eignum í Grindavík og það eru líka margir Grindvíkingar sem vilja búa þar áfram.
Þeim er ekki hjálpað heldur eru misvitrir íslenskir ríkistarfsmenn sem vita ekkert um hvað er gangi þarna að ráðskast með tíma þeirra og möguleika til áframhaldandi búsetu í Grindavík.
![]() |
Fjöldi Grindvíkinga nýtir rýmri heimild í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.11.2023 | 22:12
Allir þeir jarðfræðingar
Sem íslenskir fjölmiðlar tala við út af Reykjanesinu virðast ekki ná inntakinu í kenningunni um rek jarðskorpuflekanna. Gömlu kallarnir eru kannski löglega afsakaðir en þau yngri virðast líka ekki vera með á þessu þó hafi verið í námi eftir að hún kom fram og hefðu átt að læra/skilja hana til að ná prófi.
Í grunnin er kenningin þannig að flekarnir reka á möttlinum vegna togkrafta frá tunglinu, svipað og laust gólfteppi sem færist til þegar gengið er á því. Það þýðir tæknilega að þegar sprunga opnast þar sem flekarnir reka í sundur, eins og á Reykjanesi núna, er ekkert í sprungunni til að byrja með. Engin kvika, engin sjór, ekkert gas og ekkert loft. Það sem fyllir sprunguna þegar frá líður er efni sem kemst greiðast að.
Kvikugangurinn sem er búinn að vera í umræðunni undanfarið gæti því eins hafa verið loft eða sjógangur. Núna eftir að sigdalurinn myndaðist er augljóst að efnið kemur mikið til þaðan.
Allir sem hafa ferðast um Reykjanesið utan vega ættu að vita að þar er mikill fjöldi sigdala sem ekkert hraun hefur runnið yfir. Oft eru þessir dalir með 5-10 metra stálum til beggja handa og margra kílómetra langir.
Í þessu viðtali talar Haraldur ,tuttugustu aldrar jarðfræði,sem passar alls ekki við að flekarnir reki heldur sé þeim ýtt í sundur með með föstu efni sem gengur upp úr miðri jörðinni undir íslandi (möttulstrókur).
![]() |
Kraftarnir sem valda hamförunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 17.11.2023 kl. 09:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.9.2023 | 13:36
Jarðfræðingar ríkisins.
Þannig er með hraungos eins nú stendur yfir á Reykjanesi að hraunið sem kemur fyrst upp endar neðst og oft á nokkur hundruð metra dýpi þegar hverju gosi-goskafla lýkur. þess vegna hafa jarðfræðingar ríkisins lítinn eða engan aðgang að efnasamsetningu þeirrar kviku sem fyrst kemur upp í goshrinum hraungosa á Reykjanesi.
Veðurstofa íslands virðist vera klassískt dæmi um opinbera stofnun þar sem engin kemst að nema hlaupa með hjörðinni og vera undir 110 í IQ.
![]() |
Líkist Öskju og Veiðivötnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.9.2023 | 12:06
Antony Blinken Í Úkrainu, okkur vantar mannskap.
Nú eru Rússar búnir að drepa eða örkumla meira en hálfa milljón manna á besta aldri frá því vinnuveitendur Blinkens, Glóbalistarnir á vesturlöndum ákváðu að skipta Rússlandi upp í fleiri viðráðlegri smáríki. Verkefnið gengur hægar en Glóblistarnir höfðu vonað og skortur á ungum hraustum mönnum í verkefnið er orðinn verulegur. Nýjast hugmynd Glóbalistanna er að láta handtaka og framselja til Úkrainu Úkrainska borgara á herskyldualdri (Sem er 16-60 ára í Úkrainu núna) svo hægt verði að senda þá á austurvígstöðvarnar. það munu vera um 80.000 bara í póllandi.
![]() |
Blinken snúinn aftur til Kænugarðs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.7.2023 | 11:13
Feitir dvergar sem spá eldgosum?
Þegar spádómsgáfa þeirra er skoðuð aftur í tímann er ljóst að þeir hafa sjaldan rétt fyrir sér. En biluð klukka er rétt tvisvar á sólhring. Ef maður spáir eldgosi í hvert sinn sem það sjást kvikuhreyfingar á mælum á reykjanesi síðustu misseri virðist eldgos innan fárra vikna á svæðinu vera mögulegt. Líkurnar eru þá nokkrar á að feiti dvergurinn hafi rétt fyrir sér núna ef maður skilgreinir tímaramman nokkrar vikur. En oftast vantar skýran tímaramma í spádómana. í þessum spádómi er talað um að eldgos sé í aðsigi. En ef maður býr á íslandi er eldgos alltaf í aðsigi. Þannig er ljóst að spá feita dvergsins er ekki spá heldur lýsing á staðreynd sem allir ættu að vita.
Hvaða gagn er af svona spádómum ?
Það er alveg hægt að hafa gaman að þessu en á þessu er dekkri hlið. Feitir dvergar kosta skattpeninga og geta haft áhrif á hegðun þeirra sem oft eru kallaðir fyrsta stigs hugsuðir (um 70% af heildinni IQ undir 110). Til dæmis er feiti dvergurinn hér að stinga upp á misgáfulegum viðbrögðum við eldgosi sem hann skilgreinir sem X stórt en hann hefur í raun ekki hugmynd um hvort veriði eða hve stórt. Feitir dvergar hafa hag af því að fólk óttist spádóma þeirra. Nýlegt dæmi um hættuna sem stafar af feitum dvergum er viðbrögð við covid fárinu á vesturlöndum.
![]() |
Allt bendir til þess að gos sé í uppsiglingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 18.11.2023 kl. 09:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)