Færsluflokkur: Bloggar
27.5.2011 | 09:12
Vill engin tala við þig Birna mín.
""Það hefur bara gengið illa að fá heimili og í einhverjum tilfellum fyrirtæki líka til að koma að borðinu og skoða þessar lausnir og ganga frá þeim, segir Birna. ""
Ég er ekki í neinum viðskiptum við Glitni en ég þekki nokkuð til mála sem þar eru í gangi.
Þér til upplýsingar Birna, þá rændi Glitnir marga af þessum viðskiptavinum aleigunni og það er ástæðan fyrir því að þeir vilja ekki tala við þig.
![]() |
Vinna enn eftir samkomulaginu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.5.2011 | 10:39
Bankalandið
Hér er stór góð greining á innhaldi nýrra kjarasamninga eftir Gunnar Skúla Ármannsson
Þetta þurfa allir að lesa.
![]() |
Samningar setja þrýsting á Seðlabanka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.5.2011 | 12:04
Hvað getur olía kostað mikið ?
Ég skrifaði smá gein um þetta 2008 "Olíugreining" sjá hér.
Þessi grein er í fullu gildi enn og í reynd hefur ekkert breyst.
![]() |
Verðhrun á olíu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.5.2011 | 10:25
Rottur í völundarhúsi
1. Maí finnst mér eins og að fylgjast með rottum í völundarhúsi.
Herskáustu rotturnar rífast um hver sé besta leiðin út, án þess að haf í raun minnstu hugmynd um hver rétta leiðin er.
Áhorfendurnir (Kaupsýslumennirnir) sem hafa yfirsýn á völundarhúsið fylgjast grannt með og breyta völundarhúsinu jafn óðum ef einhver rottan virðist ætla að álpast rétta leið út.
![]() |
1. maí fagnað um land allt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.4.2011 | 11:39
Cyndi Lauper er orðin að meiriháttar listamanni
Mér fannst Cyndi Lauper aldrei vera nema kannski rúmlega meðal poppari sem þægilegt var að hlusta á í bland með öðru. Fyrir ári síðan eða svo rakast ég hinsvegar á þetta myndband með henni sem tekið er á tónleikum 2007 sem fékk mig til að skipta um skoðun. Þarna er Cyndi 54 ára, hún verður 58 ára 22 júní í sumar.
Þetta er einfaldlega lifandi flutningur á tónlist eins og hann verður bestur.
![]() |
Cyndi Lauper í Hörpunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.4.2011 | 12:38
Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands 24. gr.
Forseti lýðveldisins getur rofið Alþingi, og skal þá stofnað til nýrra kosninga, áður en 45 dagar eru liðnir frá því er gert var kunnugt um þingrofið],1) enda komi Alþingi saman eigi síðar en [tíu vikum]1) eftir, að það var rofið. [Alþingismenn skulu halda umboði sínu til kjördags.]
![]() |
Forsetinn boðar blaðamannafund |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.4.2011 | 11:39
Ég sagði NEI
Til þess lágu margvísleg rök en hér eru rök sem mér finnst að ekki hafi fengið nóg pláss í umræðunni en vógu einna þyngst í minni ákvörðun.
Fiat peningar, eins og krónur og pund eru mis mikils virð eftir því hver heldur á þeim.
þannig er er króna í hendi ríkisjóðs íslands ekki peningur sem er hægt að kaupa hvað sem hugurinn girnist fyrir heldur eingöngu hagstjórnartæki, ríkissjóður íslands getur alltaf fengið eins mikið og hann listir af krónum með því að reka sig með halla en það skiptir öllu máli í hvað krónunum er eytt fyrir hagstjórnina. Ef íslenska ríkið sér sér hag í því að tryggja krónur í íslenskum bönkum þá er það í raun, bara spurning um að ákveða það.
Sama gildir hinsvegar ekki um Pund í íslenskum bönkum, þeim þarf safna með afgangi á vöruskiptum eða fá þau að láni í útlöndum.
Þannig er þessu líka farið í Bretlandi. Bretar geta ákveðið að tryggja eða borga út innistæður í pundum ef þeir telja það borga sig án þess að þurfa að selja Landróvera til útlanda fyrir því.
![]() |
Kjörstaðir opnaðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.3.2011 | 13:28
Draumar geðsjúkra morðingja rætast.
Ég held að draumar okkar manna séu alltaf fallegir og réttlætanlegir en meðulin sem við notum til að ná settu marki eru það sem skilur á milli stórmenna og siðblindra ritverkaþjófa eða geðsjúkra morðingja.
Adolf Hitler átti sér marga stóra drauma. Sá stærsti var sennilega draumurinn um sameinaða Evrópu. Sá draumur er óðum að rætast þar sem evran, hin sameinaði gjaldmiðill Evrópu er lagt komin með að ýta löndum myntbandalagsins saman í eitt ríki.
Nýjasta uppfinningin í líftæknibransanum var ofarlega á draumalista Hitlers. En það er framleiðsla olíu úr frumefnum hennar, Vetni og kolefni, fyrirtækið Jouleun limited sem er í Cambridge, Massachusetts er langt komið í þessu og þar á bæ segjast menn geta framleitt olíu sem kostar minna en $30/ barel. Sólarsellur sem framleið olíu.
![]() |
Guttenberg segir af sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.3.2011 | 11:45
Upprifjun staðreynda í icesave deilunni.
Þetta er endurritun úr símtali Alister Darling og Árna Matt frá 7. október 2008 þar sem hann útskýrir áhrif neyðarlaganna á breskra banka með íslenskar kennitölur. Þetta samtal gerði Darling reiðan og hann seti hryðjuverkalög á bankana í kjölfarið.
Darling: Do I understand that you guarantee the deposits of Icelandic depositors?
Mathiesen: Yes, we guarantee the deposits in the banks and branches here in Iceland.
Darling: But not the branches outside Iceland?
Mathiesen: No, not outside of what was already in the letter that we sent.
Darling: But is that not in breach of the EEA Treaty?
Mathiesen: No, we dont think so and think this is actually in line with what other countries have been doing over recent days.
á íslensku er þetta samtal svona.
ÁM: Já, við tryggjum innistæður í bönkum og útibúum banka hér á landi.
AD: En ekki útibúum utan Íslands?
ÁM: Nei, ekki utan þess sem nú þegar fram í bréfinu sem við sendum.
AD: En er það ekki í bága við EES-samninginn?
ÁM: Nei, það teljum við ekki og reyndar tel ég það í samræmi við það sem aðrar þjóðir hafa verið að gera undanfarna daga.
![]() |
Losað um eignir íslenskra banka í Bretlandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.2.2011 | 09:00
ICESAVE. Hvert fór hann, hvar er hann og hvaðan kom hann.
Icesave peningarnir fóru að mestu í fjárfestingar í Bretlandi og eru þar enn, í formi eigna þrotabús Landsbankans. Þær eignir hafa vissulega rýrnað nokkuð eins og allar eignir í Bretlandi en það gildir um allar eignir allra banka á Bretlandi. Peningarnir sem lagðir voru undir í Icesave komu úr eignabólunni í Bretland að stórum hluta. Breska ríkið fékk síðan skatta af Icesave og innistæðueigendur fengu Vextina. Svo þegar Bretar ákváðu að greiða út Icesave fóru nær allir þeir peningar beint inn í breska hagkerfið. Icesave var sem sagt í breska hagkerfinu en ekki því íslenska og hafði raunar ekkert með ísenska hakerfið að gera fyrir utan þá fásinnu að innistæðutryggingasjóðurinn var á íslenskri kennitölu.
Nánar um Icesave og innistæðutryggingar.
![]() |
Býst ekki við bótamáli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)