Rafbílar eru orku og umhverfissóðar.

Bensínbíll sem kostar allt að því helmingi minna en sambærilegur rafbíll, er 10% léttari og eyðir um 0,004 L /100km/kg er umhverfiskænasti kostur einstaklinga í einkabíl,  sama hvernig menn reyna að telja sér trú um annað.

Af hverju ? 

1. Viðhald vega eykst veldisvaxandi með þunga farartækjanna sem um þá fara. Þessi þungamunur (ekki minna en 10%) kostar því gríðarlega fjármuni í vegaviðhaldi. Viðhald vega er að verulegum hlut bara olíukostnaður.

2. Farartæki valda slysum í réttu hlutfalli við þunga þeirra, það er að segja tjón vegna slysa aukast vegna aukningar heildarþyngdar umferðar. Þetta kostar orku við að búa til nýtt og laga. 

3. Hver umframkróna í framleiðslukostnaði er ígildi mengunar. það er erfitt að meta þennan lið en þumalputtareglan er sú að dollar í framleiðslu kosti hálfan dollar í orku.  Upp á íslensku þá gæti þetta þýtt að ef að rafbíll sem þú ert að kaupa kostar einni milljón meira en svipaður bensínbíll þá ertu þú í raun að eyða aukalega bensíni (olíu)  fyrir hálfa milljón þegar þú kaupir hann. Fyrir hálfa miljón er hægt að keyra smábíl sem eyðir 4 lítrum á hundraðið yfir 50.000 km. 

4. Ef orkan sem notuð er á rafbíl er framleidd með olíu þá verður "olíu"eyðsla rafbíls alltaf  meiri en bensínbíls vegna tapa við hleðslu og afhleðslu og aukinnar þyngdar rafbílsins.  

5. Eftirspurn eftir orku í heiminum er mætt með olíu og ýmsu öðru. Líta má á endurnýjanlega orkugjafa sem fasta stærð og síðan er olía notuð til að toppa upp það sem á vantar. Vara sem þú kaupir sem neytandi þarf að stuðla að minnkun heildarorkunotkunar í heiminum annars eykur hún notkun á olíu þó varan sjálf gangi fyrir rafmangi. Rafbílar auka í reynd verulega við heildarorkunotkun í samanburði við ódýra bensínbíla.


mbl.is Allar tegundir af rafbílum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Snorri Hansson

Mörg okkar eigum hin ýmsu verkfæri  t.d. hleðsluborvélar, sem við getum ekki notað lengur vegna þess að rafhlaðan er hætt að halda hleðslunni.

Nýjar rafhlöður eru aftur á móti ótrúlega dírar. ( Ef þær eru fáanlegar.)

 Þetta er svo sem ekkert  stóráfall,  bara nokkrir þúsundkallar.

En hvernig er að eiga bíl með ónýtum rafhlöðum ? (Ný farin úr ábyrgð)

 

Snorri Hansson, 26.10.2014 kl. 03:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband