23.3.2020 | 09:57
Embætti sóttvarnalæknis í vondum málum.
Nú ætti öllum að vera ljóst að aðferðir sóttvarnalæknis eru ekki alveg að virka.
í gær gerði Þórólfur sig svo opinberlag af fífli þegar hann tjáði landsmönnum að vegna skorts á sýnatökupinnum hefðu helmingi færri sýni verið tekin síðustu daga, og bætti svo við hróðugur að staðfestum smitum fjölgaði minnst á íslandi af öllum norðurlöndum, sem er vitanlega bara vegna þess að hann er að taka færri sýni.
Í firradag voru 28% sýna landlæknis með smiti og 7% sýna ÍE. sem er tvöföldun hjá landlækni og tíföldun hjá ÍE. Smit eru öllum landshlutum og pestin er því orðin að faraldri á íslandi og ekkert eftir í vopnabúrinu nema útgöngubann.
Af þessari frétt má svo ætla að stærstu mistökin hafi verið láta túrista valsa hér um óáreitta eftir að pestin fór að dreifa sér á heimsvísu, sem er líka það sem hefur verið hvað mest gagnrýnt.
Er þetta "I told you so moment" íslandssögunar.
Loka skólum vegna smits í Mývatnssveit | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Menn enda oft á að verða sammála Guðmundur.
Og það er bara alveg ágætt.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 23.3.2020 kl. 20:10
Sammála segirðu, um hvað ?
Guðmundur Jónsson, 24.3.2020 kl. 08:46
Nú um allt það sem þú sagðir hér að ofan.
Um hvað hélstu að ég væri að tala??
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 24.3.2020 kl. 11:02
Já auðvitað, ég var eitthvað utan við mig í morgun 😃
Guðmundur Jónsson, 24.3.2020 kl. 18:19
Gerist á bestu bæjum.
Ég tengi ekki alveg þegar ég fæ mér Neskaffi í morgunsárið, en lagast allur þegar alvöru kaffi er lagað.
Gat bara ekki stillt mig.
Vona að þú fyrirgefir það.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 24.3.2020 kl. 18:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.