Yfirsýn á vandan

Ef manneskjunni vantar yfirsýn á vandamál og sér enga leið út úr ógöngum hleypur hún á oft náðir trúarbragða. Í þessu tilfelli er fagnaðarerindið að reka Davíð Oddson úr stól seðlabankastjóra. En kaldur sannleikurinn er að ef það ætti að hafa einhver áhrif á stöðu mála til framtíðar hefði það þurft að gerast fyrir 15 eða 20 árum síðan, þegar hann stýrði ásamt fleirum opnun íslenska hagkerfisins. Í dag eru þessar vangaveltu tímaeyðsla sem skemma bara fyrir lausn vandans. Einn þeirra manna sem unnu hvað mest með Davíð í þessu á sínum tíma er Jón Baldvin Hannibalsson, ég hef alltaf borið mikla virðingu fyrir honum. Að hann skuli nú stíga fram í þessu lýðskrumi ber samt vott um dómgreindarleysi af hans hálfu og mér hreinleg sárnar hans framkoma í þessu.

  Ég er samála því að seðlabankastjóri á ekki að vera pólitískur enda hefði það hugsanleg forðað þessari stjórnarsamstarfs krísu. Ef það var slíkt hjartans mál samfylkingarþingmanna átti að taka á því upphafi stjórnarsamstarfsins og of seint að iðrast nú.  Núna þarf bara að nota þau tæki sem við höfum til að vinna úr efnahagsvandanum en ekki rífa niður stjórnarsamstarfið í einhverju pólitískru uppgjöri ISG við fyrrverandi formann sjalflæðisflokksins.


mbl.is Samfylking afneitar Davíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband