Kaldar eru kveðjurnar.

 

 


mbl.is Hafnar framsali valds til dómstóls ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um ætlað hraungos í Grindavík

Þessi mynd var birt með frétt um "væntanlegt" eldgos í Grindavík.  Hún sýnir þau undirliggjandi gögn sem upphlaupið í Grindavík byggir á. Heildar hækkun lands er nú um 30 mm sem er ígildi um 0,002 rúmkílómetra. Rúmálsbreytingarnar í Bárðarbungu 2014 voru 1,5 rúmkílómetri og Holuhraun varð samtals 1,5 rúmkílómetrar, það er að segja, kvikan sem hreyfist til að búa til þessa kúpu í Grindavík er um það bil einn þúsundasti af Holuhrauni. 

Það sem er kannski meira athyglisvert er að myndin sýnir að þarna ekki um hægar kvikuhreyfingar að ræða eins og voru í Kröflueldum eð Holuhrauni heldur er hér ljóslega öldu hreyfing sem orsakast af "sprengingu" eða atburð sem nær að búa til áhrif sambærileg því sem gerist þegar steinn fellur í sléttan vatnsflöt. Þarna er engu líkara en að  bankað sé í jarðskorpuna að neðan.

 

Maelitæki


mbl.is Jarðskjálfti 2,4 að stærð vestan við Þorbjörn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vandi heilbrigðiskerfisins á Íslandi er augljós.

Svandís Svavarsdóttir mun samt aldrei taka á honum því það færi beint gegn hennar lífsviðhorfum. Svandís er dóttir Svavars Gestssonar sem stundaði nám hjá Austurþýska kommúnistaflokknum í Berlín á sjöunda ártug síðustu aldar. þaðan á Svandís sínar fyrstu minningar. þau feðgin urðu fyrir stærsta áfalli lífs síns þegar Berlínarmúrinn féll. þá var Svandís 26 ára. Ég minnist blaðagreina og viðtala við Svavar frá þessum tíma sem öll voru samhengislaus reiðilestur og flótti frá raunveruleikanum. Nokkrum árum seinna birtist svo Svandís í íslenskri pólitík eins og afsteypa pabba síns, öskureið vegna falls múrsins, með það helst að markmiði að hefna fyrir ósigur kommanna í Berlín.

Það sem varð Austurþýskulandi að falli var fyrst og fremst ríkisrekinn áætlanabúskapur í öllu.

Það vill til að þetta er líka það sem er að Íslenska heilbrigðiskerfinu og fólk eins og Svandís mun verja það kerfi með kjafti og klóm fram í rauðann dauðann.


mbl.is Bráðalausn á vanda bráðamóttöku ekki til
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óskiljanlegar fréttir af ætluðu stríði.

Hér ætla ég að gera tilraun til að útskýra málið í stuttu máli án þess að gera ráð fyrir að Trump sé fáviti sem ætlar í stríð. 

Bandaríski herinn BH er sá öflugasti í heimi. Bandaríska þjóðin gæti farið í stríð við heiminn og samt átt ágæta möguleika á "sigri" eða í það minnsta meiri en þjóðverjar þegar þeir hafa farið í þá vegferð. Risanum stýrir um þessar mundir Donald nokkur Trump sem hefur það yfirlýsta markmið að draga úr viðveru BH í miðausturlöndum.

Árásinn á Soleimanis og félaga í Írak var taktísk lausn á vandamáli sem BH hefur verið að glíma við undanfarin áratug á svæðinu. BH hefur byggt upp innviði í landinu í samvinnu við meirihluta íbúa þess sem samt vilja ekki hafa BH í landinu og halla sér til Írans og vilja þjóðnýta mannvirkin og innviðina í þágu íslam. Fyrirætlanir stjórnvalda í Irak sem sitja í umboði BH eru ávísun á blóðbað sem BH getur illa verið bendlaður við. Írösk Stjórnvöld bjóða svo mönnum sem hafa það yfirlýsta markmið að útrýma Gyðingum og Bandaríkjunum í kurteisisheimsókn sem gerir ástandið óbærileg fyrir BH.

Drápið á Soleimanis skerpir línurnar og auðveldar BH að yfirgefa Irak án eftirmála eins og urðu í Sýrlandi, þar sem vesturveldin fundu BH allt til forátu vegna brottfararinnar.

Hvort þetta takist er svo annað mál, en þetta er í það minnsta skýring sem er í einhverju samhengi við raunheima.

Kannski er bandaríski herinn á leið frá Írak og Donald Trump ekki fáviti. 

 


mbl.is Bandaríkjaher undirbýr brottflutning frá Írak
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Guðmundur Ingi umhverfissóði ?

Þessi ummæli benda til þess að umhverfiráðherra hendi plastmálum og öðru slíku  óflokkuð í í ruslið til urðunar. Og hann má hafa slæma samvisku yfir því.

Ég og mitt fólk gætum þess hinsvegar að endurnýta og flokk allt plast. 

 


mbl.is Ekki ásættanlegt háttalag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband